Frétt
Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur að hámarki orðið 1.500.000.000 krónur að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 6,20% flötum vöxtum (verð: 96,9608).
Tilboðum var tekið að fjárhæð 1.350.000.000 að nafnvirði. Alls eru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 8.850.000.000 krónur.
Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 15. október næstkomandi.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?