Frétt

Afkoma Íslandsbanka á fyrsta ársfjórðungi 2012

Yfirlit yfir helstu niðurstöður:

  • Hagnaður eftir skatta var 5,6 milljarðar samanborið við 3,6 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2011.
  • Hagnaður eftir skatta af reglulegri starfsemi, þ.e. hagnaður eftir frádrátt einskiptiskostnaðar, s.s. hreinnar virðisbreytingar á lánabókinni, gangvirðisbreytinga vegna breyttra reikningsskilaaðferða, kostnaðar sem tengist sameiningunni við Byr og virðisrýrnunar viðskiptavildar, og nettó hagnaðar vegna aflagðrar starfsemi, var 4,8 milljarðar á fjórðungnum, samanborið 3,8 milljarða á sama tímabili í fyrra og 13,9 milljarða fyrir allt árið 2011.
  • Nettó gjaldfærsla vegna endurmats lánasafnsins nam 1,5 milljarði á fjórðungnum, samanborið við gjaldfærslu upp á 664 milljónir á sama tímabili í fyrra.
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta á tímabilinu var 17,7% á ársgrundvelli, samanborið við 11,7% á fyrsta ársfjórðungi 2011. Arðsemi tímabilsins af reglulegri starfsemi var 15,1% á fjórðungnum, samanborið við 12,4% sama tímabili árið 2011.
  • Um 18.200 einstaklingar og um 3.000 fyrirtæki hafa fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum frá stofnun bankans sem nemur um 370 milljörðum króna.
  • Heildareignir við lok fjórðungsins námu 792,4 milljörðum, samanborið við 795,9 milljarða í árslok 2011.
  • Heildarinnlán við lok fjórðungsins námu 509,3 milljörðum, samanborið við 525,8 milljarða í árslok 2011.
  • Vaxtamunur á fjórðungnum var 4,4%, samanborið við 4,5% fyrir árið 2011.
  • Tveir nýir flokkar sértryggðra skuldabréf voru seldir til breiðs hóps fagfjárfesta í mars að heildarfjárhæð 3,3 milljarðar króna.
  • Eigið fé nam 129,4 milljörðum í lok tímabilsins og hækkaði um 5% á ársfjórðungnum. Eiginfjárhlutfall var 23,3% í lok tímabilsins, sem er töluvert umfram það 16% lágmark sem FME setur bankanum.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
“Íslandsbanki kemur sterkur út úr fyrsta ársfjórðungi 2012. Eigið fé bankans er vel yfir lágmarks kröfum eftirlitsaðila og hagnaður af reglulegri starfsemi hefur styrkst. Þessi ársfjórðungur verður ávallt merkilegur í sögu bankans en þá lauk sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Ég er afar stolt af starfsfólki bankans og þeirri elju og jákvæðni sem það sýndi í því mikla verkefni.

Í febrúar féll enn einn gengislánadómurinn sem tefur fjárhagslega endurskipulagningu. Það kemur sér illa fyrir viðskiptavini, bankann og samfélagið í heild en því miður mun, að öllum líkindum, ekki liggja fyrir fyrr en í haust hvernig beri að túlka dóminn.

Við fundum fyrir aukinni útlánaeftirspurn ársfjórðungnum. Sérstaklega sjáum við vöxt hjá Ergo, fjármögnunarþjónustu Íslandsbanka. Þetta gefur til kynna að fyrirtæki eru byrjuð að taka varfærin skref í fjárfestingum. Við sjáum þó greinilega að sjávarútvegur og fyrirtæki í tengdri starfsemi halda að sér höndum og eru ekki að ráðast í nýjar fjárfestingar á meðan óvissa ríkir um frumvarp til laga um stjórn fiskveiða og starfsumhverfi greinarinnar.

Þá hafa viðtökur fjárfesta við sértryggðum skuldabréfum bankans verið góðar og voru tveir flokkar nýlega stækkaðir. Þetta eykur fjölbreytni í fjármögnun bankans sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum okkar góð kjör.“

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall