Frétt
Íslandsbanki hf. : Þriðja árshlutauppgjör 2017 birt fimmtudaginn 9. nóvember 2017
Íslandsbanki mun birta þriðja árshlutauppgjör 2017 fyrir opnun markaða fimmtudaginn 9. nóvember 2017.
Fjárfestafundur á ensku
Markaðsaðilum er boðið upp á símafund kl. 13.00 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.
Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.
Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?