Frétt
Islandsbanki hf.: Útboð á víxlum 4. september
Íslandsbanki hf. verður með víxlaútboð þriðjudaginn 4. september 2018.
Boðnir verða út 6 mánaða flokkurinn ISLA 19 0312 og 9 mánaða flokkurinn ISLA 19 0611.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 4. september en greiðslu- og uppgjörsdagur er 11. september 2018.
Nánari upplýsingar veita:
Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?