Frétt
Islandsbanki hf.: Afkoma fyrri árshelmings 2018 birt fyrir opnun markaða fimmtudaginn 2. ágúst
Íslandsbanki mun birta afkomu fyrri árshelmings 2018 fyrir opnun markaða, fimmtudaginn 2. ágúst
Símafundur með fjárfestum á ensku kl. 9:30
Markaðsaðilum er boðið upp á símafund 2. ágúst kl. 9.30 á ensku. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans.
Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir fundinn.
Afkomufundur á íslensku kl. 10:30
Markaðsaðilum er boðið á opinn fjárfestafund á íslensku 2. ágúst kl. 10:30 sem verður haldinn á 9. hæð höfuðstöðva bankans að Hagasmára 3. Boðið verður upp á veitingar.
Skráning á fundinn er skilyrði.
Fjárhagsdagatal
Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjörs á neðangreindum dagsetningum:
- Árshlutauppgjör 3F 2018 - 8. nóvember 2018
- Ársskýrsla og ársreikningur 2018 - 14. febrúar 2019
- Aðalfundur – 21 mars 2019
Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
Frekari upplýsingar veitir:
Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, gunnarsm@islandsbanki.is og í síma 440 4665.