Frétt

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 5 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 5 mánaða víxillinn á 5,90% flötum vöxtum (verð: 97,3670) og 6 mánaða víxillinn á 5,95% flötum vöxtum (verð: 97,0175).

Tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 260 milljónir króna að nafnvirði og að fjárhæð 460 milljónir króna í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 6,92 ma. kr.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 17. júlí næstkomandi.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall