Frétt

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á tveimur víxlum til 5 og 6 mánaða. Hvor flokkur getur að hámarki orðið 1,5 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði. 5 mánaða víxillinn á 5,80% flötum vöxtum (verð: 97,5483) og 6 mánaða víxillinn á 5,85% flötum vöxtum (verð: 97,1275).

Tilboðum var tekið í 5 mánaða víxilinn að fjárhæð 760 milljónir króna að nafnvirði og að fjárhæð 1.120 milljónir króna í 6 mánaða víxilinn. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 4,62 ma. kr.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 15. október næstkomandi.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall