Frétt

Íslandsbanki: Tveir flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

Íslandsbanki hefur lokið útboði vegna stækkunar á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa sem voru teknir til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland í mars 2012. Annars vegar var 7 ára útgáfan ISLA CBI 19, stækkuð um ISK 635.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,90%, og hins vegar var 12 ára útgáfan ISLA CBI 24 stækkuð um ISK 850.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,48%.

Heildarstærð ISLA CBI 19 útgáfunnar er nú orðin ISK 2.465.000.000 og heildarstærð ISLA CBI 24 útgáfunnar orðin ISK 2.350.000.000. Alls hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf að upphæð ISK 8.815.000.000 frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu var ISK 2.185.000.000, en 68% tilboða var tekið að upphæð ISK 1.485.000.000.

Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 10. maí næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka. Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfinu skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall