Frétt

Islandsbanki hf. : Íslandsbanki hf. gefur út ný skuldabréf að fjárhæð 300 milljón sænskar krónur til fjögurra ára

Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 300 milljón sænskar krónur (4,7 milljarðar króna). Skuldabréfið sem er til fjögurra ára ber fljótandi vexti, 310 punkta ofan á þriggja mánaða Stibor. Umframeftirspurn var eftir bréfunum, en kaupendur voru fjárfestar frá Svíþjóð, Noregi og meginlandi Evrópu. Stefnt er að því að skrá skuldabréfin í Kauphöllina á Írlandi þann 13. febrúar.

Útgáfan er gefin út undir Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans.Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla.

Umsjónaraðili útboðsins var Pareto Securities AB í Stokkhólmi.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall