Frétt

Islandsbanki hf. : Fyrsta árshlutauppgjör 1F2014

Helstu niðurstöður

  • Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 8,3 ma. kr. á fyrsta ársfjórðungi 2014, samanborið við 4,6 ma. kr. á sama tímabili 2013. Munurinn á milli ára liggur að stærstum hluta í hagnaði vegna sölu eignarhluta í aflagðri starfsemi.
  • Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 19,3% (1F2013: 12,2%), þrátt fyrir að eigið fé bankans hækkaði um 15% á milli ára frá 152 ma. kr. í 175 ma. kr.
  • Eiginfjárhlutfall heldur áfram að styrkjast, var 30,3% (2013: 28,4%) og eiginfjárhlutfall A (Tier 1) 27,0% (2013: 25,1%), sem skýrist að hluta af 2% lækkun áhættugrunns (RWA) á fyrsta fjórðungi í 644 ma. kr. (2013: 660 ma.kr.).
  • Hreinar vaxtatekjur voru 6,6 ma. kr. (1F2013: 7,5 ma. kr.) sem er lækkun um 11,1% milli ára. Vaxtamunur var 3,0% á fyrsta ársfjórðungi 2014 (4F2013: 3,1%) og er nú orðinn stöðugur.
  • Hreinar þóknanatekjur voru 2,9 ma. kr. á 1F2014 (1F2013: 2,5 ma. kr.) sem er hækkun um 16,4% á milli ára og má að mestu rekja til markaða, viðskiptabanka, eignastýringar og dótturfélaga bankans.
  • Kostnaðarhlutfall bankans lækkaði í 55,1% (1F2013: 67,1%); lækkunina má rekja til til fækkunar starfsmanna og áframhaldandi kostnaðaraðhalds.
  • Frá stofnun bankans hafa um 35.900 einstaklingar og um 4.160 fyrirtæki fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema 555 ma. kr.
  • Öllum stórum málum sem lúta að fjárhagslegri endurskipulagningu hefur nú verið lokið. LPA hlutfallið var 7,8% (2013: 8,3%) og þau smærri mál sem eftir standa munu hvert fyrir sig hafa lítil áhrif á hlutfallið. Hlutfall vanskila umfram 90 daga var 3,8% (2013: 3,5%) og jókst tímabundið vegna loka endurskipulagningar á stórum viðskiptavini.
  • Heildareignir voru 884 ma. kr. (2013: 866 ma. kr.), sem er 2% aukning frá árslokum 2013.
  • Heildarinnlán jukust í 530 ma. kr. úr 519 ma. kr. í lok árs 2013, sem má rekja til eðlilegra sveiflna í innlánum frá viðskiptavinum og fjármálastofnunum.

Nánari upplýsingar um afkomu bankans má finna í ítarlegri afkomutilkynningu hér meðfylgjandi.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

„Við erum ánægð með afkomu fyrsta ársfjórðungs þar sem við sjáum aukna arðsemi, hækkun þóknanatekna og áframhaldandi lækkun kostnaðar milli ára. Svo virðist sem markaðurinn hafi tekið við sér sem endurspeglast í aukinni eftirspurn eftir útlánum sem hafa vaxið um 2% frá áramótum. Grunnrekstur bankans styrkist og 16% aukning var á þóknanatekjum á milli ára.

Hagræðingarverkefni hafa gengið vel, við höfum haldið áfram að hagræða í útibúaneti bankans og nýverið var tilkynnt um sameiningu tveggja útibúa og breytingu á afgreiðslu bankans í Kringlunni í sjálfsafgreiðslu. Raunlækkun á stjórnunarkostnaði var 7,4% á milli ára og kostnaðarhlutfallið var 55,1% sem er í takt við langtímaáætlanir bankans.

Eftir lok fyrsta ársfjórðungs gaf Íslandsbanki út skuldabréf í evrum að upphæð 100 milljónir evra (15,6 ma. kr.), sem er fyrsta evru útgáfa hjá íslenskum banka og markar tímamót fyrir bankann og íslenskt fjármálakerfi.

Nú sér til lands hvað varðar leiðréttingu húsnæðislána að hálfu stjórnvalda. Starfsfólk bankans hefur unnið að því að undirbúa það verkefni og hvetjum við alla viðskiptavini okkar til að sækja um leiðréttinguna og að nýta sér skattfrjálsa ráðstöfun séreignarsparnaðar“

Fjárfestakynning - símafundur

Síðar í dag kl. 13 mun bankinn bjóða markaðsaðilum upp á símafund. Fundurinn fer fram á ensku og farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Nauðsynlegt að gestir skrái sig með því að senda póst á: ir@islandsbanki.is.

Öll gögn er tengjast afkomu bankans má finna á www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl

Nánari upplýsingar

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall