Frétt

Nýr flokkur sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hefur gefið út nýjan flokk sértryggðra skuldabréfa. Um er að ræða óverðtryggða útgáfu, 3 ára flokk, ISLA CB 16 að upphæð ISK 1.700.000.000 á ávöxtunarkröfunni 6,35%. Bréfin bera 6,2523% vexti greidda tvisvar á ári.

Alls hefur Íslandsbanki gefið út fimm flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð ISK 22.340.00.000 frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 22. október næstkomandi.  Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall