Frétt

Íslandsbanki hefur gefið út ársskýrslu og áhættuskýrslu (Pillar 3) fyrir árið 2018

Íslandsbanki hefur gefið út ársskýrslu og áhættuskýrslu fyrir árið 2018.  

Ársskýrsla

Í skýrslunni má finna áhugaverðar upplýsingar um starfsemi bankans á liðnu ári m.t.t. viðskiptasviða og Íslandssjóða, fjármála og stafrænnar þróunar þar sem bankinn hefur stigið stór skref að undanförnu. Þá er einnig yfirgripsmikil samantekt um samfélagslega ábyrgð Íslandsbanka og stuðning bankans við heimsmarkmið SÞ.
Skýrslan kemur út á íslensku og ensku og er henni einnig gerð góð skil á nýjum
Íslandsbankavef www.islandsbanki.is.

Áhættuskýrsla

Markmið áhættuskýrslu Íslandsbanka er að uppfylla lögbundnar kröfur um
upplýsingagjöf og veita markaðsaðilum og öðrum áhugasömum upplýsingar sem ætlað er að auka skilning á áhættustýringu og eiginfjárstöðu bankans.
Skýrslan er á ensku.

Hægt er að nálgast ofangreindar skýrslur, ásamt fjárhagsupplýsingum, á ársskýrsluvef bankans: www.islandsbanki.is


Nánari upplýsingar veita

Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, gunnarsm@islandsbanki.is sími 440 4665

Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is sími 440 4005

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall