Frétt

Islandsbanki hf. : Afkoma ársins 2013 birt þann 20. febrúar

Íslandsbanki mun birta afkomu ársins 2013 fyrir opnun markaða fimmtudaginn 20. febrúar 2014.

Síðar um daginn kl. 16.00 munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum. Fundurinn fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans að Kirkjusandi. Skrá mig á fundinn.


Einnig er boðið upp á símafund á ensku kl. 13.00, þar sem farið er yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir fundinn.

Öll gögn má nálgast á vef fjárfestatengsla.

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall