Frétt

Íslandsbanki: Tveir nýir flokkar sértryggðra skuldabréfa skráðir í kauphöll

Íslandsbanki hefur lokið útboði á tveimur nýjum flokkum sértryggðra skuldabréfa á NASDAQ OMX Iceland hf., en Íslandsbanki var fyrsta fjármálafyrirtækið síðan í nóvember 2008 til að gefa út verðbréf í íslensku kauphöllinni í desember 2011.

Um er að ræða tvær verðtryggðar útgáfur sértryggðra skuldabréfa. Annars vegar 7 ára flokk, ISLA CBI 19, að upphæð ISK 1.830.000.000 á ávöxtunarkröfunni 2,84%, og hins vegar 12 ára flokk, ISLA CBI 24, að upphæð ISK 1.500.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,45%. Bréfin verða tekin til viðskipta í íslensku kauphöllinni þann 7. mars næstkomandi.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin var ISK 4.950.000.000, en 67% tilboða var tekið að upphæð 3.330.000.000 krónur. Engin tilboð voru samþykkt í óverðtryggðan flokk til 3 ára. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út samkvæmt lögum nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfinu skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni, auk þess sem sjálfstæður skoðunarmaður sinnir eftirliti.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall