Frétt

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 3.500 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.040 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 440 m.kr. á 5,20% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.000 m.kr. á bilinu 5,15% - 5,40%.

Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 600 m.kr. á 5,48% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 1.500 m.kr. á bilinu 5,42% - 5,55%.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 16. mars.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall