Frétt

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 7.660 m.kr. og samþykkt tilboð voru samtals 5.980 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 2.320 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,55%. Heildartilboð voru 3.400 m.kr. á bilinu 5,45% - 5,87%. Heildarstærð flokksins verður 2.320 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 1.120 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,73%. Heildartilboð voru 1.120 m.kr. á bilinu 5,70% - 5,73%. Heildarstærð flokksins verður 12.800 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 2.540 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,25%. Heildartilboð voru 3.140 m.kr. á bilinu 2,14% - 2,29%. Heildarstærð flokksins verður 2.540 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 11. febrúar næstkomandi.

Í samræmi við útboðstilkynningu kaupir Íslandsbanki til baka 120 m.kr. af ISLA CB 19 og 3.400 m.kr. af ISLA CBI 19 gegn sölu nýrra skuldabréfa í útboðinu.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall