Frétt

Nýr flokkur sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hefur gefið út nýjan flokk sértryggðra skuldabréfa. Um er að ræða óverðtryggða útgáfu, 3 ára flokk, ISLA CB 15 að upphæð ISK 1.240.000.000 á ávöxtunarkröfunni 6,5%. 

Bréfin bera 6,4% vexti greidda tvisvar á ári. Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin var ISK 1.930.000.000, en 64% tilboða var tekið að upphæð ISK1.240.000.000.

Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 25. október næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út samkvæmt lögum nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunni, auk þess sem sjálfstæður skoðunarmaður sinnir eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall