Frétt
Islandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 16. okt
Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum þriðjudaginn 16. október 2018.
Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 23. október 2018.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 16. október.
Nánari upplýsingar veita
Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?