Frétt
Islandsbanki hf. : Íslandsbanki lýkur víxlaútboði
Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á einum víxli til 6 mánaða. Flokkurinn getur að hámarki orðið 1,50 ma. kr. að nafnvirði. Útboðinu var þannig háttað að boðið var í magn á fyrirfram ákveðnu verði, á 6,10% flötum vöxtum (verð: 97,0243).
Tilboðum var tekið að fjárhæð 1,32 ma. kr. að nafnvirði. Fyrir útboðið voru útistandandi víxlar Íslandsbanka að fjárhæð 8,53 ma. kr.
Bréfin voru seld til breiðs hóps fjárfesta. Stefnt er að töku víxlanna til viðskipta í Nasdaq OMX Iceland þann 17. janúar næstkomandi.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?