Frétt

Leiðrétting: Íslandsbanki hf.: Niðurstaða víxlaútboðs

Leiðrétting á frétt sem birt var 16:59 05.04.2018 GMT. Ástæða leiðréttingar er að samþykkt tilboð í 6 mánaða víxilinn voru ekki rétt. Tilboðum var tekið fyrir 1.760 m.kr. en ekki 1.800 m.kr. Í heild var tilboðum tekið fyrir 1.760 m.kr. í stað 1.800 m.kr

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 2.740 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.760 m.kr.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 1.760 m.kr. á 4,33% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.400 m.kr. á bilinu 4,28% - 4,35%.

Í 12 mánaða víxilinn bárust tilboð að nafnverði 340 m.kr. á bilinu 4,54%-4,70%. Öll tilboð voru afþökkuð.
Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 10. apríl.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall