Frétt

Ársuppgjör 2018

Helstu atriði í afkomu Íslandsbanka á árinu 2018

  • Hagnaður eftir skatta var 10,6 ma. kr. (2017: 13,2 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár var 6,1% á ársgrundvelli (2017: 7,5%).
  • Hagnaður af reglulegri starfsemi var 12 ma. kr. (2017: 13,8 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 16% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) var 8,0% á ársgrundvelli (2017: 9,9%).
  • Hreinar vaxtatekjur voru 31,9 ma. kr. (2017: 30 ma. kr.) sem er um 6,5% hækkun á milli ára og var vaxtamunur sami og í fyrra eða 2,9%.
  • Hreinar þóknanatekjur voru 12,2 ma. kr. (2017: 13,8 ma. kr.) sem er 11% lækkun á milli ára hjá samstæðu en þóknanatekjur móðurfélags og Íslandssjóða hækkuðu um 6% á milli ára.
  • Virðisbreyting fjáreigna skilaði 1,6 ma. kr. hagnaði á tímabilinu sem er sambærilegt við fyrra ár.
  • Stjórnunarkostnaður hækkaði lítillega á milli ára og nam 27,7 ma. kr. (2017: 27 ma. kr.).
  • Kostnaðarhlutfall samstæðu í lok árs 2018 var 66,3% samanborið við 62,5% á sama tímabili í fyrra, á meðan kostnaðarhlutfall móðurfélags var 60,4% en langtímamarkmið bankans er 55%.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 12% (91,4 ma. kr.) á árinu og voru 846,6 ma. kr. í lok árs 2018. Ný útlán voru 239 ma. kr. á árinu.
  • Innlán frá viðskiptavinum hækkuðu um 2,1% eða 11,9 ma. kr. á árinu og námu 579 ma. kr. í lok árs 2018.
  • Lausafjárstaða bankans er sterk bæði í íslenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum og
    umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið. Við árslok var lausafjárhlutfallið (LCR) 172% (2017: 142%) og fjármögnunarhlutfallið (NSFR) 114% (2017: 117%).
  • Vogunarhlutfall var 14,6% við árslok samanborið við 16,2% við lok árs 2017, sem telst hóflegt bæði í innlendum og erlendum samanburði.
  • Stjórn bankans leggur til að 5,3 ma. kr. af hagnaði ársins 2018 verði greiddir í arð til hluthafa. Greiðslan samsvarar um 50% af hagnaði ársins 2018 og er í línu við lang-tímastefnu bankans um 40-50% arðgreiðsluhlutfall.
  • Bankinn birtir ársskýrslu og áhættuskýrslu á sama tíma og ársreikning fyrir árið 2018. Hægt er að nálgast gögnin hér: https://www.islandsbanki.is/is/flokkur/bankinn/fjarfestatengsl

Helstu atriði í afkomu fjórða ársfjórðungs (4F18)

  • Hagnaður eftir skatta var 1,4 ma. kr. (4F17 3,1 ma. kr.). Arðsemi eigin fjár var 3,2% á
    ársgrundvelli (4F17: 6,9%).
  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 2,1 ma. kr. (2017: 3,6 ma. kr.) og var arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 16% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) 5,3% á ársgrundvelli (4F17: 10,3%).
  • Hreinar vaxtatekjur voru 8,3 ma. kr. (2017: 7,3 ma. kr.) og var vaxtamunur 3% (4F17:2,8%).
  • Hreinar þóknanatekjur voru 3,5 ma. kr. (4F17: 3,6 ma. kr.).

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

Á árinu 2018 var stafræn þróun í forgangi hjá okkur í Íslandsbanka þegar við inn-leiddum nýtt grunnkerfi sem er stærsta tækniverkefni bankans frá stofnun og kynntum til leiks fjölmargar nýjar stafrænar lausnir fyrir viðskiptavini okkar.

Við erum glöð að mælast aftur hæst hjá viðskiptavinum í bankaþjónustu á Íslandi og sjötta árið í röð hlýtur Íslandsbanki Íslensku ánægjuvogina. Við munum halda áfram að bjóða trausta og framúrskarandi þjónustu og gera viðskiptavinum okkar kleift að sinna bankaviðskiptum sínum, hvar og hvenær sem er.

Sterkur vöxtur var í lánabókinni sem jókst um 12% á árinu og við sáum kröftuga aukn-ingu í fyrirtækjalánum en kannanir hafa einmitt sýnt fram á forystu Íslandsbanka þegar kemur að ánægju með þjónustu til fyrirtækja.Við höfum markað okkur stöðu sem leiðandi aðili í sambankalánum auk þess sem fyrirtækjaráðgjöf og gjaldeyrismiðlun bankans áttu frábært ár og dótturfélag okkar Íslandssjóðir setti á laggirnar fyrsta innlenda græna skuldabréfasjóðinn.

Afkoma bankans og Íslandssjóða var ágæt á árinu og skilaði samstæðan hagnaði upp á 10,6 ma. kr. en erfiður rekstur annarra dótturfélaga dró heldur úr afkomunni. Fjármögnun bankans var vel heppnuð á árinu og er lausafjárstaðan sterk í bæði ís-lenskum krónum og erlendum gjaldmiðlum, áhætta bankans er áfram hófleg og henni vel stýrt.

Undanfarin ár höfum við einblínt á að nútímavæða bankann og byggja upp ábyrga viðskipta- og áhættumenningu. Við ætlum að halda þeirri vegferð áfram á nýju ári með því að ráðast í stefnumótun sem við erum viss um að muni skila sér í enn betri banka til hagsbóta fyrir samfélagið allt. Við fögnum útgáfu nýrrar hvítbókar um framtíðarsýn fyrir fjármála-kerfið sem kom út í lok síðasta árs sem staðfestir hve miklar umbætur hafa átt sér stað í íslensku bankakerfi á undanförnum árum. Hvítbókin bendir einnig á þunga skattbyrði íslensks bankakerfis sem hefur fyrst og fremst bitnað á íslenskum neytendum og vonumst við til að sjá breytingar hvað þetta varðar.

Helstu atriði úr rekstri fjórða ársfjórðungs (4F18)

Íslandsbanki tilkynnti þátttöku í sameiginlegri áætlun leiðandi norrænna fyrirtækja um stuðning við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun

Samstarf Íslandsbanka við stærsta fjártæknisetur heims kynnt

Tilkynnt um 410 milljóna fárfestingu Íslandsbanka í Meniga

Alþjóðlega sjóðastýringarfyrirtækið Vanguard og Íslandsbanki fögnuðu 20 ára sam-starfsafmæli

Íslandssjóðir stofnuðu sjóðinn IS Græn skuldabréf

Íslandsbanki hélt fund um stöðu kvenna á íslenskum vinnumarkaði: „Hvar vilja konur vinna?“

Fjárfestatengsl

Símafundur með markaðsaðilum á ensku kl. 9.30
Símafundur með markaðsaðilum vegna uppgjörs verður haldinn 14. febrúar kl. 9.30. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans.
Fundurinn verður á ensku.

Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir
fundinn.

Afkomufundur á íslensku kl. 10.30
Afkomufundur með innlendum markaðsaðilum verður haldinn 14. febrúar, kl. 10.30 í höfuðstöðvum Íslandsbanka að Hagasmára 3, 201 Kópavogi á 9. hæð. Fundurinn verður á íslensku. 
Vinsamlegast skráið ykkur á afkomufundinn með pósti á: ir@islandsbanki.is

Öll gögn tengd uppgjöri ásamt upplýsingum um fjárhagsdagatal og þögul tímabil má finna hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/

Nánari upplýsingar veita

Fjárfestatengsl – Gunnar Magnússon, gunnarsm@islandsbanki.is sími 440 4665

Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, edda.hermannsdottir@islandsbanki.is sími 440 4005

 

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall