Frétt

Islandsbanki hf. : Flokkar sértryggðra skuldabréfa stækkaðir

Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á útistandandi flokkum sértryggðra skuldabréfa sem skráðir eru á Nasdaq Iceland. Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 15 var stækkaður um 750.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 5,75% en verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 24 um 660.000.000 kr. á ávöxtunarkröfunni 3,50%. Öllum tilboðum var hafnað í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 20.

Heildarstærð ISLA CB 15 útgáfunnar er nú orðin 4,67 ma. kr. og ISLA CBI 24 er orðin 9,40 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út sjö flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 32,09 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011.

Bréfin voru seld til breiðs hóps fagfjárfesta. Heildareftirspurnin í útboðinu var 2,69 ma. kr., en 52% tilboða var tekið. Stefnt er á að bréfin verði tekin til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 4. desember næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka.

Bréfin eru gefin út í samræmi við lög nr. 11 frá 2008 um sértryggð skuldabréf þar sem strangar kröfur eru gerðar til útgefenda. Tryggingasafnið að baki skuldabréfunum skal standast sérstök vikuleg álagspróf með tilliti til vaxta og gengis gjaldmiðla. Þá hefur Fjármálaeftirlitið sérstakt eftirlit með útgáfunum, sem einnig tilnefnir sjálfstæðan skoðunarmann til að sinna eftirliti. Skýrslur um tryggingasafnið að baki sértryggðu skuldabréfunum eru gefnar út ársfjórðungslega og má finna á vef Íslandsbanka.

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall