Frétt
Islandsbanki hf. : Afkoma fyrri árshelmings birt þann 28. ágúst
Íslandsbanki mun birta afkomu fyrri árshelmings 2013 fyrir opnun markaða miðvikudaginn 28. ágúst 2013.
Síðar um daginn munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara fyrirspurnum.
- Tími: 16.00
- Staðsetning: Íslandsbanki, Kirkjusandur 2, 5. hæð
- Skráning: Vegna aðgangsmála er nauðsynlegt að gestir skrái sig á afkomukynninguna hér: http://www.islandsbanki.is/afkomufundur
- Fundurinn fer fram á íslensku
Hægt verður að nálgast fundargögn frá kynningunni á www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl
Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna hér: http://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/fjarhagsdagatal/
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?