Frétt

Islandsbanki hf.: Afkoma fyrri árshelmings 2018

Helstu atriði í afkomu fyrri árshelmings 2018 (1H18)

  • Hagnaður eftir skatta var 7,1 ma. kr. (1H17: 8,0 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár 8,2% á ársgrundvelli (1H17: 9,2%).
  • Hagnaður af reglulegri starfsemi var 6,8 ma. kr. (1H17: 7,4 ma. kr.) og arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) 9,9% á ársgrundvelli (1H17: 11,2%).
  • Hreinar vaxtatekjur voru 15,3 ma. kr. (1H17: 15,2 ma. kr.) og var vaxtamunur 2,8% (1H17: 2,9%).
  • Hreinar þóknanatekjur voru 5,8 ma. kr. (1H17: 6,8 ma. kr.) sem er 15% lækkun frá 1H17 og má að mestu rekja til lækkunar á þóknanatekjum í tveimur dótturfélögum bankans.
  • Virðisbreyting útlána skilaði 1,9 ma. kr. hagnaði á fyrri árshelmingi samanborið við 440 m.kr. hagnað á 1H17.
  • Stjórnunarkostnaður án einskiptisliða jókst um rúm 3% á milli ára og nam 13,7 ma. kr. (1H17: 13,2 ma. kr.). Hækkunin skýrist einkum af samningsbundnum launahækkunum auk kostnaðar vegna innleiðingar á nýju grunnkerfi bankans.
  • Útlán til viðskiptavina jukust um 5,9% (44,8 ma. kr.) á 1H18 í samtals 800 ma. kr. Ný útlán á fyrri árshelmingi voru 98,5 ma. kr. og dreifðust vel á milli viðskiptaeininga bankans en innlán frá viðskiptavinum hækkuðu um 2% eða 11,4 ma. kr. Heildarinnlán námu 578 ma. kr.
  • Lausa- og eiginfjárstaða bankans er áfram sterk og er umfram kröfur eftirlitsaðila og innri viðmið.

Helstu atriði í afkomu annars ársfjórðungs 2018

  • Hagnaður eftir skatta var 5 ma. kr. og arðsemi eigin fjár 11,6% á ársgrundvelli sem er sambærilegur hagnaður og arðsemi miðað við sama tímabil árið 2017.
  • Hagnaður af reglulegri starfsemi nam 4 ma. kr. sem er sambærilegt við annan ársfjórðung 2017 og var arðsemi eigin fjár af reglulegri starfsemi miðað við 15% eiginfjárhlutfall þáttar 1 (CET1) 11,6% á ársgrundvelli (2F17: 11,8%).
  • Hreinar vaxtatekjur voru 7,6 ma. kr. (2F17: 7,8 ma. kr.) og var vaxtamunur 2,8% (2F17: 3%).
  • Hreinar þóknanatekjur voru 3 ma. kr. (2F17: 3,5 ma. kr.).

Helstu atriði úr rekstri fyrri árshelmings 2018

  • Bankinn hélt áfram að þróa nýjar stafrænar lausnir fyrir viðskiptavini en sem dæmi má nefna að um 6.500 yfirdráttarlánaumsóknir að fjárhæð 2,2 ma. kr. voru sjálfkrafa samþykktar í Íslandsbanka appinu á fyrri hluta ársins.
  • Innleiðing á nýju grunnkerfi bankans komst á lokastig og stefnt er að gangsetningu á þriðja ársfjórðungi 2018.
  • Fjárfestingarbankastarfssemi var öflug á tímabilinu með ýmsum skuldabréfútgáfum og sambankalánum fyrir viðskiptavini.
  • Í apríl fékk bankinn endurnýjun viðurkenningar um góða stjórnarhætti frá Rannsóknarmiðstöð um stjórnarhætti.
  • Alþjóðlega fjármálatímaritið Euromoney valdi í júlí Íslandsbanka besta bankann á Íslandi árið 2018.
  • Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings staðfesti í júlí lánshæfismat bankans í BBB+/A-2, stöðugar horfur.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka

Rekstur bankans á fyrri helmingi ársins var umfram væntingar og skilaði bankinn hagnaði upp á 7,1 milljarð króna sem er 8,2% arðsemi eigin fjár á ársgrundvelli. Móðurfélagið heldur áfram að skila stöðugum þóknana- og vaxtatekjum auk þess sem hagstætt efnahagsumhverfi hefur leitt til jákvæðrar virðisrýrnunar á eignasafni bankans sem stendur vel í alþjóðlegum samanburði.

Töluverð umsvif voru í fjárfestingarbankastarfsemi á fyrstu sex mánuðum ársins en sjávarútvegsteymi bankans var m.a. umsjónaraðili fyrir 190 milljóna evra sambankalán fyrir HB Granda og verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf bankans unnu náið saman við skuldabréfaútgáfur fyrir HS Veitur, Byggðastofnun, Eik fasteignafélag og Garðabæ.

Ánægðir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa tekið stafrænum lausnum bankans fagnandi. Aldrei hafa jafn margir viðskiptavinir verið virkir notendur stafrænna lausna og sinna nú yfir 90% viðskiptavina hefðbundnum bankaviðskiptum í gegnum netbanka eða öpp Íslandsbanka. Greiðsludreifingar kreditkortareikninga og stafrænt greiðslumat húsnæðislána eru meðal þeirra lausna sem kynntar voru viðskiptavinum á fyrri helmingi ársins.

Bankinn gaf út ýmsar skýrslur á tímabilinu og í júlí valdi alþjóðlega fjármálatímaritið Euromoney Íslandsbanka sem besta bankann á Íslandi og var þetta í fimmta sinn sem bankinn hlýtur viðurkenninguna. Framundan er Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem er stærsti fjáröflunarviðburður ársins en í fyrra söfnuðust 118 milljónir króna til góðgerðarfélaga. Við hvetjum alla til að taka þátt þann 18. ágúst og styðja við góðgerðarstarfssemi með áheitum á keppendur.

Fjárfestatengsl

Símafundur með fjárfestum á ensku kl. 9.30

Símafundur með markaðsaðilum vegna uppgjörs verður haldinn 2. ágúst kl. 9.30. Farið verður yfir helstu atriði í íslenskum efnahagsmálum og afkomu bankans. Fundurinn verður á ensku.
Vinsamlegast skráið ykkur á símafundinn með að senda póst á: ir@islandsbanki.is. Fundargögn og aðgangsorð vegna símafundar verða send út til skráðra aðila fyrir fundinn.

Afkomufundur á íslensku kl. 10.30

Markaðsaðilum er boðið á opinn fjárfestafund á íslensku 2. ágúst kl. 10.30 sem verður haldinn á 9. hæð höfuðstöðva bankans að Hagasmára 3.
Skráning á fundinn er skilyrði fyrir þátttöku. Skrá mig á fjárfestafund.

Myndband

Hér má sjá myndband þar sem Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri Íslandsbanka segir frá uppgjörinu:

 

Frekari upplýsingar

Öll gögn má finna hér.

Fjárhagsdagatal og þögul tímabil

Upplýsingar um fjárhagsdagatal bankans og þögul tímabil má finna á vef fjárfestatengsla.

Nánari upplýsingar veita:

Til baka

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall