Sparileið

Sparileið er verðtryggður reikningur þar sem vextirnir eru breytilegir eftir binditíma (36, 48 eða 60 mánuðir). 

Hægt er að stofna Sparileið í Netbanka og útibúum Íslandsbanka.

Kostir

  • Verðtryggður reikningur
  • Vextir hækka með lengri binditíma
  • Vextir greiddir út mánaðarlega og eru ávallt lausir til útborgunar
  • Engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða aðrar þóknanir

Þú velur binditímann

  • Sparileið 36 - 3 ár
  • Sparileið 48 - 4 ár
  • Sparileið 60 - 5 ár

Eftir því sem peningarnir eru bundnir lengur, þeim mun hærri vexti færð þú af innistæðunni. Að binditíma loknum er reikningurinn laus til útborgunar í einn mánuð í senn á sex mánaða fresti. Hvert innlegg er bundið umsaminn binditíma.

Til baka

Skilmálar

Stofnun reiknings
Reikningurinn er stofnaður í útibúi Íslandsbanka eða Netbanka Íslandsbanka.

Inn- og útborganir
Hver innborgun er bundin í 36, 48 eða 60 mánuði, eftir því hvaða binditími er valinn við stofnun reiknings. Að binditíma loknum er reikningurinn laus til útborgunar í einn mánuð í senn á sex mánaða fresti. Hvert innlegg er bundið umsaminn binditíma.

Útborgun getur farið fram á hvaða afgreiðslustað bankans sem er, sé öðrum skilyrðum til úttektar fullnægt og fullgildum persónuskilríkjum framvísað eða vottuðu umboði reikningseiganda til úttektar. Umboðshafi skal sanna á sér deili með sama hætti og reikningseigandi og afhenda afrit umboðs til varðveislu í útibúi.

Vaxtatímabil
Vaxtatímabilið er frá fyrsta til síðasta dags hvers mánaðar. Vextir eru færðir á höfuðstól við lok hvers mánaðar og eru ávallt lausir til útborgunar.

Útreikningur verðbóta
Um mánaðamót reiknast verðbætur samkvæmt vísitölu neysluverðs á lægstu innstæðu reikningsins í síðasta almanaksmánuði og leggjast þær mánaðarlega við höfuðstól. Á inn- og útborganir hvers mánaðar reiknast sérstakar verðbætur, sem eru breytilegar í samræmi við vaxtaákvörðun bankans hverju sinni og leggjast þær við höfuðstól um mánaðamót.

Þóknanir
Bankinn innheimtir engin þjónustugjöld, innlausnargjöld eða þóknanir.

Kjör og skilmálar
Reikningurinn er verðtryggður innlánsreikningur sem tekur mið af breytingum á vísitölu neysluverðs. Á innistæðu reiknast breytilegir vextir. Skilmálar þessir og kjör reikningsins að öðru leyti eru háð ákvörðun bankans og almennum reglum Seðlabanka Íslands um verðtryggingu innlána hverju sinni. Upplýsingar um kjör reikningsins er að finna í vaxtatöflu bankans.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall