Vafrakökur

Hvað eru kökur (e. Cookies)?

Kökur eru litlar textaskrár sem er komið fyrir á tölvunni eða snjalltækinu þínu þegar þú heimsækir vefsíðu. Þegar þú heimsækir vefsíðuna næst í sama tæki man síðan eftir þér og hvernig þú notaðir síðuna. Slíkar kökur eru notaðar til þess að bæta virkni vefsíðunnar, greina umferð um hana og bæta þjónustu við notendur. Flestar kökur varðveitast aðeins í stuttan tíma en aðrar geta varðveist lengur.

 

Kökur fyrsta aðila

Kökur sem verða til á því vefsvæði sem þú heimsækir, í þessu tilfelli síður Íslandssjóða, kallast kökur fyrsta aðila (e. first-party cookies).
Sumar af þessum kökum eru nauðsynlegar fyrir fulla virkni vefsíðnanna og til þess að þú getir notað allt sem er í boði á síðunum t.d. aðgang að öruggum svæðum síðunnar. Þar sem þessar kökur eru nauðsynlegar er ekki hægt að hafna þeim án þess að skerða virkni síðunnar. Viljir þú engu að síður hafna slíkum kökum getur þú stöðvað notkun þeirra sjá í kaflanum Hvernig stilli ég kökur?

 

Kökur þriðja aðila

Kökur þriðja aðila (e. third-party cookies) eru vefkökur sem verða til á öðrum síðum en síðunni sem þú ert að heimsækja. Kökur þriðja aðila gera það að verkum að þessir aðilar geta þekkt tækið þitt aftur bæði þegar þú heimsækir vefsvæðið og jafnvel önnur vefsvæði.

Íslandssjóðir notar slíkar kökur á vefsvæði sínu (m.a. frá Google og Facebook). Þessar kökur hjálpa okkur að skilja hvernig vefsíðurnar eru notaðar eða hversu áhrifaríkar markaðsherferðir okkar eru. Þær hjálpa okkur einnig við að bæta upplifun þína af síðunum og að sníða markaðsefni og auglýsingar að ákveðnum markhópum.

 

Hvers vegna notum við kökur?

Við notum kökur til þess að síðurnar okkar virki fullkomlega og að upplifun þín verði sem best þegar þú heimsækir síðurnar okkar. Kökur auðvelda þér að skrá þig inn í netbankann og nota reiknivélarnar okkar. Þær gera þér kleift að komast á milli síðna á auðveldari hátt og muna þær stillingar sem þú valdir þegar þú heimsóttir síðurnar síðast. Með kökum getum við boðið upp á að síðurnar aðlagi sig að því tæki sem þú notar til að heimsækja þær.

Í sumum tilfellum kunna kökur að safna upplýsingum eins og IP-tölum, gerð vafra, gerð tækis. Sumar þessara upplýsinga geta talist persónuupplýsingar en nánar um hvernig meðferð persónuupplýsinga er háttað hjá Íslandsbanka má nálgast hérUpplýsingarnar sem fengnar eru með þessum hætti eru aldrei notaðar til þess að auðkenna þig.

 

Hvernig stilli ég kökur?

Þú hefur rétt á því að ákveða hvort þú samþykkir kökur eða ekki. Ef þú vilt ekki samþykkja kökur getur þú slökkt á þeim með því að breyta vafrastillingum þínum eða stillt hvernig vafrinn notar þær. Leiðbeiningar um stillingu vafra má finna með því að heimsækja hjálparsíðu þess vafra sem þú notar. Hér er tengill á leiðbeiningar um stillingar á kökum nokkurra algengra vafra.*

*Íslandssjóðir hf. tekur ekki ábyrgð á því efni sem birtist á þessum vefsíðum.

Athugið að það getur komið niður á virkni síðunnar ef slökkt er á vefkökum og jafnvel gert það að verkum að þú getur ekki heimsótt vissa hluta síðunnar.