Valmynd

Árshlutauppgjör Íslandssjóða 2017

Mikill vöxtur einkenndi starfsemi Íslandssjóða hf. á fyrstu sex mánuðum ársins. Hagnaður félagsins jókst um 148% og var 114 milljónir króna og hreinar rekstrartekjur 694 milljónir króna. Starfsmönnum fjölgaði úr 15 í 19 þegar öflugt eignastýringarteymi gekk til liðs við félagið. Eignir í stýringu í sjóðum og sérgreindum eignasöfnum námu alls 203 milljörðum króna í lok tímabilsins, auk fagfjárfestasjóða og fjárfestingarfélaga í stýringu hjá Íslandssjóðum. Ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Íslandssjóða var góð og nam ávöxtun þeirra samtals 4.250 milljónum króna á tímabilinu.
Íslandssjóðir hf. er elsta sjóðastýringarfyrirtæki landsins, stofnað árið 1994 og er dótturfélag Íslandsbanka.

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2017

  • Hagnaður félagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2017 var 114 m.kr. samanborið við 46 m.kr. fyrir sama tímabil 2016 og hækkaði um tæp 148%.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 694 m.kr. samanborið við 567 m.kr. á sama tíma árið 2016 og hækkuðu um tæp 23%.
  • Rekstrargjöld námu 551 m.kr. samanborið við 509 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og hækkuðu um 8,3%.
  • Heildareignir félagsins 30. júní 2017 námu 2.472 m.kr. en voru 2.453 m.kr. í árslok 2016.
  • Eigið fé 30. júní 2017 nam 2.111 m.kr. en var 2.094 m.kr. í ársbyrjun. Eiginfjárhlutfall, reiknað samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 64,4% í lok júní, en þetta hlutfall má lægst vera 8,0%.
  • Í lok júní 2017 voru 26 verðbréfa- og fjárfestingasjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 121 milljarði króna samanborið við 116 milljarða í árslok 2016. Ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða nam 4.250 milljónum króna á tímabilinu samanborið við 470 milljónir á sama tíma 2016.

    Kjartan Smári Höskuldsson, framkvæmdastjóri Íslandssjóða:
    „Rekstur Íslandssjóða gengur vel og góður árangur náðist víðast hvar í starfseminni. Þá ber sérstaklega að fagna góðri ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða félagsins sem margir hverjir hafa skilað framúrskarandi ávöxtun það sem af er ári. Um tíu þúsund íslenskir sparifjáreigendur velja sjóði Íslandssjóða til að ávaxta sinn sparnað og því skiptir góður árangur í stýringu sjóðanna miklu máli og er til vitnis um faglega og öfluga eignastýringu. Félagið er auk þess að vaxa sem skilar sér í aukinni sérþekkingu starfsmanna og nýjum og spennandi fjárfestingarkostum, bæði fyrir almenna sparifjáreigendur og fagfjárfesta“.

    Árshlutareikningur félagsins er aðgengilegur á heimasíðu félagsins: www.islandssjodir.is