Valmynd

Íslandssjóðir framúrskarandi fyrirtæki 2013

Íslandssjóðir hf. eru í hópi framúrskarandi fyrirtækja á Íslandi árið 2013 samkvæmt styrkleikamati Creditinfo. Íslandssjóðir eru á meðal 1% íslenskra fyrirtækja sem standast þær kröfur. Þetta er þriðja árið í röð sem Íslandssjóðir hljóta þessa viðurkenningu.

Til þess að eiga kost á viðurkenningunni þurfa fyrirtæki að uppfylla strangt gæðamat byggt á faglegum kröfum og greiningu Creditinfo.

Skilyrðin eru:

  • Að hafa skilað ársreikningum til RSK fyrir rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að það séu minna en 0,5% líkur á alvarlegum vanskilum
  • Að sýna rekstrarhagnað (EBIT) þrjú ár í röð
  • Að ársniðurstaða sé jákvæð þrjú ár í röð
  • Að eignir séu 80 milljónir kr. eða meira rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að eigið fjárhlutfall sé 20% eða meira rekstrarárin 2010 til 2012
  • Að vera með skráðan framkvæmdastjóra og stjórnarmenn í hlutafélagaskrá
  • Að vera virkt fyrirtæki skv. skilgreiningu Creditinfo

Nánari upplýsingar um viðurkenninguna er að finna á vef Creditinfo.