IS Græn skuldabréf

Ráðlagður fjárfestingartími: 3 ár +

Fyrir hvern?

Sjóðurinn er valkostur fyrir sparifjáreigendur sem leggja áherslu á umhverfis- og samfélagsmál án þess að slá af kröfum um samkeppnishæfa langtíma ávöxtun og hentar sjóðurinn fjárfestum sem vilja ávaxta fé í þrjú ár eða lengur. Meðaltími eigna sjóðsins getur verið á bilinu 0 til 14 ár, þannig að gengi sjóðsins er nokkuð næmt fyrir breytingum á ávöxtunarkröfu og gengi sjóðsins getur lækkað tímabundið. Jafnframt metur sjóðsstjóri hverju sinni hvort sé hagkvæmara að fjárfesta í verðtryggðum eða óverðtryggðum bréfum. Sjá áhrifaskýrslu græna sjóðsins fyrir 2020 og 2021 og 2022.

Helstu kostir

  • Valkostur fyrir sparifjáreigendur sem vilja hafa jákvæð áhrif á þróun í umhverfis- og samfélagsmálum
  • Sérfræðingar sjá um stýringu eigna
  • Engin binding, innlausn með tveggja daga fyrirvara

Gengi
2.086,38
-0,26 (-0,01%)
Gengi 15.04.2024
Nafnávöxtun
Óverðtryggð ríkisbréf 7.9
Verðtryggð ríkisbréf
8.7
Íbúðabréf 0.0
Græn skuldabréf 82.2
Innlán fjármálafyrirtækja 0.0
Félagsleg skuldabréf 0.0
Laust fé 1.9

Eignasafn og stefna

Markmið sjóðsins er langtímaávöxtun með því að fjárfesta í skuldabréfum á Íslandi sem hafa verið gefin út til að stuðla að sjálfbærni og/eða jákvæðri þróun í umhverfis- og félagslegum þáttum og sem tekin hafa verið til viðskipta (skráð) á skipulögðum markaði (kauphöll) á Íslandi (Nasdaq Iceland og Nasdaq First North). Áhersla er lögð á skuldabréf sem eru flokkuð sem sjálfbær, græn eða félagsleg skuldabréf (e. sustainability, green or social bond) eða flokkuð sem sjálfbærnitengd skuldabréf (e. sustainability linked bond). Sjóðnum er einnig heimilt að fjárfesta í skuldabréfum og víxlum sem gefin eru út af eða með ábyrgð íslenska ríkisins, og er mat sjóðsstjóra hverju sinni hvort hagkvæmt er að fjárfesta í skuldabréfum með langan eða stuttan tíma, verðtryggðum eða óverðtryggðum.

Staða 01.04.2024

Gengisþróun

Grunnupplýsingar

Tegund sjóðs
Sérhæfður sjóður fyrir almenna fjárfesta
Stofnár
2009
Grunnmynt
ISK
Lágmarkskaup
kr.  10.000
Lágmarkskaup í áskrift
kr.  5.000
Áhættuvísir
2
Losunarstyrkur (tCO2e/ISKm)
0,25
Rekstraraðili
Íslandssjóðir hf.
Vörsluaðili
Íslandsbanki hf.
Sjóðsstjóri/ar
Ingólfur S. Kristjánsson Helga Óskarsdóttir

Þóknanir og viðskiptapantanir

Kostnaður við kaup
1,00%
- afsláttur í Netbanka
25%
- afsláttur í áskrift
50%
Árleg umsjónarlaun
1,00%
Afgreiðslugjald
kr.  1000
- afsláttur í netbanka
100%
Uppgjörstími
2 viðsk.dagar (T+2)
Viðmiðunartími
kl. 15:00
Almennur fyrirvari vegna fjárfestinga í sjóðum

Fjárfestingum í fjármálagerningum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta, svo sem hætta á lítilli eða engri ávöxtun eða að höfuðstóll tapist. Bent skal á að ávöxtunartölur vísa til fortíðar og að árangur í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um árangur í framtíð. Áhætta af fjárfestingu eykst ef fjárfestingin er fjármögnuð með lánsfé og ávöxtun getur aukist eða minnkað vegna gengisflökts þegar við á. Skattaleg meðferð ræðst af aðstæðum hvers viðskiptavinar fyrir sig og getur tekið breytingum í framtíðinni.

Fjárfestar eru hvattir til að kynna sér vel lykilupplýsingar og útboðslýsingar sjóða en þar er að finna nánari upplýsingar um viðkomandi sjóð, m.a. um áhættuþætti, fjárfestingarheimldir og notkun afleiðna.

Upplýsingar á síðunni eru aðeins birtar í upplýsingaskyni og skal ekki líta á þær sem tilboð eða ráðgjöf um kaup, sölu eða aðra ráðstöfun tiltekinna fjármálagerninga. Áskilinn er réttur til leiðréttinga.

Gengisþróun og ávöxtun

Tekið er tillit til umsýsluþóknunar við daglegan útreikning á gengi sjóða. Ávöxtun umfram 12 mánuði er reiknuð yfir á ársgrundvöll. Ávöxtun styttri tímabila er ekki umreiknuð á ársgrundvöll heldur er um gengisbreytingu að ræða. Uppreikningur ávöxtunar miðast við síðasta skráða gengi og er í grunnmynt viðkomandi sjóðs.