Tilkynning um meint misferli
Ef þú hefur glatað kortinu þínu eða hefur grun um óheimilar færslur á kortinu hafðu samband við þjónustuver Íslandsbanka í síma 440 4000, sem er opið frá klukkan 8:30-17:00 alla virka daga. Utan opnunartíma er hægt að hafa samband við neyðarvakt Borgunar í síma 560 1600.
Vegna vandamála með hraðbanka hafðu samband við þjónustuver Íslandsbanka.
Íslandsbanki lítur misferli mjög alvarlegum augum. Við hvetjum þig til að láta vita ef þú hefur vitneskju eða grun um hugsanlegt misferli sem tengist starfsemi bankans á einhvern hátt. Þar með aðstoðar þú við að upplýsa um brot sem valdið geta viðskiptavinum, almenningi, bankanum og atvinnulífi miklu tjóni. Tilkynning um misferli þarf að byggja á rökstuddum grun, sem þarf þó ekki að vera hafinn yfir allan vafa.
Móttaka misferlistilkynninga fer í gegnum kerfið WhistleB sem er sérstaklega aðgreint frá öðrum upplýsingakerfum bankans og vistað utan hans. Kerfið er sérstaklega hannað með tilliti til verndunar tilkynnanda og þeirra tilkynninga sem þangað berast, en veitir jafnframt möguleika á áframhaldandi samskiptum við þá sem kjósa að njóta nafnleyndar. Kerfið er mjög einfalt í notkun og leiðir tilkynnanda áfram. Einungis misferlisteymi Innri endurskoðunar bankans mun hafa aðgang að skráðum málum.
Þeir sem treysta sér ekki að nota kerfið geta haft samband við innri endurskoðanda símleiðis eða með bréfpósti.