Fjárhagsdagatal

Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjörs á neðangreindum dagsetningum.
Áður hafði verið tilkynnt um að ársskýrsla og ársreikningur yrðu birt 14. febrúar 2019 en ný dagsetning er 13. febrúar 2019.

  • Ársskýrsla og ársreikningur 2018 - 13. febrúar 2019
  • Aðalfundur - 21. mars 2019
  • Árshlutauppgjör 1F 2019 - 8. maí 2019
  • Árshlutauppgjör 2F 2019 - 31. júlí 2019
  • Árshlutauppgjör 3F 2019 - 30. október 2019

Vinsamlegast athugið að dagsetningarnar eru birtar með fyrirvara um breytingar.

Þögult tímabil

Frá og með tíu almanaksdögum fyrir birtingu árshluta- og ársuppgjörs mun Íslandsbanki ekki fjalla um eða svara spurningum um áður óbirta fjárhagslega afkomu né horfur á afkomu bankans á fundum með fjárfestum, greiningaraðilum og/eða öðrum markaðsaðilum. Eins mun bankinn, á ofangreindu tímabili, ekki flytja erindi á fjármálaráðstefnum né taka þátt í umræðum eða símafundum með fjárfestum, greiningaraðilum og/eða öðrum markaðsaðilum þar sem óbirt fjárhagsleg afkoma og horfur í rekstri bankans eru til umræðu.

Allar upplýsingar um afkomu bankans má sjá undir afkomu og tilkynningum.

Vegna aðalfundar

Hluthafar skulu leggja fram mál og/eða tillögur sem taka á til meðferðar á fundinum eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn í samræmi við 88. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Framboð til stjórnar skal tilkynna skriflega eigi síðar en fimm dögum fyrir aðalfund í samræmi við 63. gr. a. sömu laga.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall