Greiðsluleiðir
Korthafar Íslandsbanka geta valið um tvær endurgreiðsluleiðir kortanotkunar.
- Hefðbundið kreditkort - Greitt eftir á
- Fyrirframgreitt kreditkort
Hefðbundið kreditkort - Greitt eftir á
Með hefðbundnu kreditkorti greiðir korthafi heildarskuldina sem komin er á kortið á gjalddaga reiknings. Þannig fær korthafi í raun greiðslufrest í allt að 45 daga. Hægt er að setja rað- og léttgreiðslur á hefðbundið kreditkort, auk þess sem hægt er að biðja um fjölgreiðslu á heildarskuld sem er umfram greiðslugetu þann mánuðinn.
- Heildarskuld greidd á gjalddaga/eindaga reiknings
- Raðgreiðslur, léttgreiðslur og greiðsludreifing möguleg
Fyrirframgreitt kreditkort
Með fyrirframgreiddu kreditkorti þarf korthafi að eiga inneign fyrir þeirri notkun sem mun verða á kortinu. Korthafi greiðir því inn á kortið áður en það er notað. Hentugt fyrir þá sem vilja leggja inn á kortið sjálfir og hafa þannig betri yfirsýn yfir notkun. Ekki er hægt að setja rað- eða léttgreiðslur á fyrirframgreidd kreditkort.
- Raðgreiðslur og léttgreiðslur ekki mögulegar