Nýtt og glæsilegt útibú opnar í Norðurturni
Útibú Íslandsbanka í Þarabakka (537), á Digranesvegi í Kópavogi (536) og í Garðabæ (546) munu sameinast á nýjum stað í Norðurturni Smáralindar 12.12 kl. 12. Þar verður starfrækt öflugt og stórt útibú þar sem áhersla verður lögð á fjármálaþjónustu fyrir einstaklinga og lítil og meðalstór fyrirtæki.
Nýja útibúið liggur nálægt stórum umferðaræðum. Mjög gott aðgengi verður fyrir viðskiptavini auk fjölda bílastæða.
Hraðbankar verða áfram staðsettir í núverandi útibúum eða í nágrenni við þau.
Engar breytingar verða á reikningsnúmerum viðskiptavina vegna sameiningarinnar en mögulegt er að bankanúmer breytist hjá einhverjum viðskiptavinum.
Hvar er útibúið staðsett?
Íslandsbanki Norðurturni
Hagasmára 3
201 Kópavogi
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?