Þjóðhagsspá 2017-2019
Sérfræðingar bankans og Íslandssjóða fóru einnig yfir verðbréfamarkaði á árinu 2018 sem og uppgjör verðbréfamarkaða á árinu 2017.
- Þjóðhagsspá: "Sætisbökin upp" - Jón Bjarki Bentsson, aðalhagfæðingur Íslandsbanka
- Sértryggð skuldabréf - Helga Óskarsdóttir, sjóðsstjóri hjá Íslandssjóðum
- Staðan á erlendum mörkuðum - Halldóra Skúladóttir, forstöðumaður Eignastýringar hjá Íslandssjóðum
- Innlendur hlutabréfamarkaður á árinu 2018 og uppgjör 2017 - Kristján M. Bragason, sérfræðingur hjá Verðbréfamilun Íslandsbanka
Undanfarin ár hafa verið tímabil góðæris eftir djúpa efnahagslægð í lok síðasta áratugar. Uppsveiflan náði hámarki árið 2016 þegar hagvöxtur nam 7,2%.
Við áætlum að hagvöxtur í fyrra hafi verið 4,1%. Fyrir yfirstandandi ár spáum við 2,3% hagvexti, og sama hagvexti árið 2019.
Segja má að heimilin dragi hagvaxtarvagninn að stórum hluta á spátímanum.. Einkaneysla og íbúðafjárfesting hefur í því efni tekið við af þjónustuútflutningi og fjárfestingu atvinnuvega. Fyrrnefndi liðurinn mun þó vaxa talsvert áfram næstu árin.
Við spáum því að viðskiptaafgangur muni nema 3,7% af VLF í ár, og 2,4% árið 2019. Gangi það eftir mun næsta ár verða sjöunda árið samfellt þar sem umtalsverður afgangur er af viðskiptajöfnuði. Viðvarandi viðskiptaafgangur hefur átt drjúgan þátt í að bæta erlenda stöðu þjóðarbúsins, og er nú svo komið að erlendar eignir eru nokkru meiri en erlendar skuldir.
Með hægari vexti í mannaflsfrekum geirum á borð við ferðaþjónustu og byggingariðnað er líklegt að þrýstingur á vinnumarkaði hjaðni nokkuð á komandi fjórðungum. Atvinnuleysi mun því væntanlega aukast aðeins á sama tíma og hækkun launa verður hægari en verið hefur. Við spáum 3,0% atvinnuleysi í ár og 3,2% atvinnuleysi að jafnaði árið 2019. Spá okkar fyrir launaþróun hljóðar upp á 5,7% hækkun að jafnaði í ár, og 4,8% hækkun launa á næsta ári.
Við teljum að verðbólga verði við 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans á 3. fjórðungi ársins, en aukist nokkuð í kjölfarið og verði 2,8% í árslok 2018. Árið 2019 spáum við 2,8% verðbólgu að jafnaði. Það má því segja að miðað við spá okkar verði verðbólga að jafnaði í næsta nágrenni við markmið Seðlabankans fram til ársloka 2019.
Áhugaverðar staðreyndir úr Þjóðhagsspánni