Framvísun skilríkja
Öryggisins vegna förum við fram á að þú sýnir gjaldkera persónuskilríki.*
Þú þarft að hafa tvennt í huga:
- Að skilríkin séu ekki útrunnin
- Að þau séu viðurkennd sem löggild af hinu opinbera
Löggild skilríki eru:
- Vegabréf
- Ökuskírteini
- Nafnskírteini
Debet- og kreditkort teljast ekki gild skilríki, né heldur önnur skírteini, s.s. örorkuskírteini eða
skipstjórnarskírteini.
* Lög nr. 64/2006 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka leggja þá skyldu á banka og aðrar fjármálastofnanir að þær sannreyni hver viðskiptavinurinn er með því að óska eftir gildum persónuskilríkjum og taka afrit af þeim. Þau kveða líka á um áreiðanleikakönnun á viðskiptavinum, sem felur í sér að þeir eru beðnir að svara nokkrum spurningum þegar stofnað er til viðskipta, við stofnun nýs reiknings og við gjaldeyrisviðskipti.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?