Faktoring
Með Faktoring gefst fyrirtæki þínu kostur á að fjármagna safn viðskiptakrafna sem sparar innheimtukostnað og tíma. Þannig færð þú hagkvæma fjármögnun, skilvirka þjónustu og góða yfirsýn yfir viðskiptamannabókhaldið. Í Faktoring nýtur þú innheimtuþjónustu okkar sem tryggir skilvirka innheimtu á viðskiptakröfum. Við sjáum um allar kröfurnar þínar og aðstoðum þig við innheimtu á þeim, jafnvel þótt ekki sé lánað út á þær allar.
Hvernig virkar Faktoring og fyrir hverja er þjónustan?
Í Faktoring felst að fyrirtækið notar Skilvís, innheimtuþjónustu Íslandsbanka, til að senda út innheimtukröfur og fær lán út á það safn krafna sem er til staðar hverju sinni. Faktoring hentar öllum tegundum fyrirtækja sem selja vörur eða þjónustu gegn gjaldfresti.
Kostir þjónustunnar:
- Lán út á safn krafna
- Rafrænt ferli alla leið
- Innheimtubréf send í samráði við kröfuhafa
- Mismunandi innheimtuferlar
- Vanskilakröfur sendar rafrænt til milliinnheimtufyrirtækis
- Milliinnheimtufyrirtæki ráðstafa greiðslum beint inn á reikning kröfuhafa
- Persónuleg ráðgjöf og skilvirk þjónusta
Við tökum vel á móti þér
Ekki hika við að hafa samband ef þig vantar nánari upplýsingar.