Frumkvöðlasjóður
Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlegrar orku og sjálfbærs sjávarútvegs.
Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á ofangreindum sviðum. Íslandsbanki greiðir 0,1% mótframlag í sjóðinn af innstæðu Vaxtasprota innlánsreikninga bankans á ársgrundvelli.
Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka er mikilvægur vettvangur fyrir þróun framtíðarlausna til sjálfbærrar nýtingar og verndunar náttúruauðlinda. Sjóðurinn styrkir rannsóknir á sviði sjálfbærrar nýtingar orku og sjálfbærrar þróunar í sjávarútvegi og styðst við sérfræðiþekkingu starfsfólks Íslandsbanka við val á verkefnum.
Stjórn sjóðsins er tilnefnd af forstjóra Íslandsbanka og ber ábyrgð á að móta og taka ákvörðun um fjárfestingastefnu sjóðsins.
Frumkvöðlasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn á vef Íslandsbanka.
Styrkþegar Frumkvöðlasjóðs
Stjórnina skipa
- Rúnar Jónsson, viðskiptastjóri sjávarútvegs Íslandsbanka
- Hjördís Björnsdóttir, sérfræðingur Netviðskiptum Íslandsbanka
- Hjörtur Þór Steindórsson, viðskiptastjóri orkumála hjá Íslandsbanka
Úthlutunarreglur Frumkvöðlasjóðs voru samþykktar á stjórnarfundi haustið 2012.
Sjóðstjórn mun úthluta fé tvisvar á ári til verkefna og auglýsir eftir umsóknum samkvæmt úthlutunarreglum. Stjórn sjóðsins getur einnig haft frumkvæði að samstarfi í áhugaverðum verkefnum í samstarfi við útibú bankans.
Íslandsbanki leggur til stofnframlag og greiðir 0,1% mótframlag af innstæðu á Vaxtarsprota, reikningum bankans á ársgrundvelli.
Fyrirspurnir sendist á netfangið: islandsbanki@islandsbanki.is.
Frumkvöðlasjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki í sjóðinn á vef Íslandsbanka