Um fyrirtækjabankann

Fyrirtækjabankinn er sérsniðinn netbanki að þörfum fyrirtækja. Þar er hægt að stunda öll helstu bankaviðskipti og nálgast fjárhagsleg yfirlit og upplýsingar sem fyrirtækið þarf á að halda. Einnig er hægt að tengja bókhaldskerfi beint við fyrirtækjabankann og auðvelda þannig alla daglega vinnslu.

Mín síða

Staða innlánsreikninga og kreditkorta ásamt lista yfir ógreidda reikninga og eignir fyrirtækisins í verðbréfum.

  • Greinargóð sýn á stöðu allra bankareikninga
  • Greiða má reikninga, borga inn á kort og framkvæma millifærslur beint af síðunni

Stöðuyfirlit

Gefur stjórnendum fyrirtækja greinargóða sýn á fjárhagsstöðu fyrirtækisins.

  • Á fyrsta þrepi getur fjármálastjóri fyrirtækisins séð yfirlit yfir öll innlán, útlán og kreditkort hjá Íslandsbanka á einum stað
  • Á öðru þrepi er hægt að skoða sundurliðun einstakra flokka eftir inn- og útlánum
  • Á þriðja þrepi opnast nánari upplýsingar um einstök lán og reikninga ásamt öðrum hagnýtum upplýsingum
  • Auðvelt er að taka út í Excel-skjali yfirlit yfir stöðuna sem er hægt að vinna með eða færa yfir í bókhaldskerfi eftir þörfum
  • Allar stöður og upplýsingar miðast við lok síðasta bankadags

Innheimtuþjónusta

Skilvís, innheimtuþjónusta Íslandsbanka, er sérstaklega hönnuð með
hliðsjón af þörfum fyrirtækja.
  • Auðvelt að stofna, breyta og fella niður kröfur
  • Innheimtuskrá beint úr bókhaldskerfi
  • Yfirlit innheimtukrafna
  • Milliinnheimta

Greiðsluaðgerðir

  • Greiðslur í millifærslum eða greiðsluskrá
  • Greiðslur fram í tímann
  • Endurnýttar greiðsluskrár
  • Launagreiðslur, VSK og staðgreiðsla
  • Sending skilagreina

Erlend viðskipti

  • Greiðsla erlendra reikninga
  • Upplýsingar vistaðar um þekkta erlenda viðtakendun
  • Kvittun til viðtakenda á fjölmörgum tungumálum
  • Hægt að greiða af gjaldeyrisreikningum og reikningum í íslenskum krónum
  • Greiðsluskrá úr bókhaldskerfi
  • Væntanlegar erlendar greiðslur sýnilegar
  • Yfirlit reikninga í erlendum bönkum

Vefþjónusta

Vefþjónusta Íslandsbanka er rafræn tenging fyrirtækjabankans og bókhaldskerfa. Með tengingunni einfaldast vinna við tilfærslu gagna á milli fyrirtækjabankans og bókhaldskerfa.

  • Rafrænn gagnaflutningur tryggir að upplýsingar flytjast rétt milli kerfa
  • Rauntímaupplýsingar um fjárhagsstöðu fyrirtækis aðgengilegar í bókhaldskerfi
  • Styttri aðgerðatími og vinnuferlar
  • Einfaldara bókunar- og staðfestingarferli
  • Betri nýting starfsfólks og hagkvæmari tímaráðstöfun
  • Bætt fjárstreymi fyrirtækisins

Áramótayfirlit fyrir endurskoðendur

Yfirlitið gefur greinargóða sýn á allar fjárhagslegar upplýsingar fyrirtækja sem henta endurskoðendum.

  • Staða bankareikninga
  • Verðbréf í vörslu Íslandsbanka
  • Staða skulda (aðrar en yfirdráttur)
  • Kreditkort
  • Ábyrgðir eða skuldbindingar vegna þriðja aðila
  • Afleiðusamningar
  • Yfirlit prókúruhafa bankareikninga
  • Yfirlit um netbankaaðgang starfsmanna að fyrirtækinu

Aðgangsstýring

  • Aðgangsstýring sem hentar starfssviði hvers og eins
  • Einn aðgangsstjóri innan fyrirtækis, opnar og lokar aðgangi starfsmanna

Kynning á Aðgangsstýringu og stillingum

Rafræn birting gagna

Launaseðlar og fleiri gögn sem eru send á kennitölur viðtakenda eru send með öruggum hætti inn í rafræn skjöl í netbönkum viðtakenda.
  • Aukið öryggi í samskiptum
  • Sparnaður á prent- og póstkostnaði
  • Hýsing gagna í a.m.k. 7 ár
  • Umhverfisvæn meðferð gagna

Samþykktarferli fyrir greiðslur

  • Starfsmaður skráir greiðslu inn í fyrirtækjabankann
  • Að minnsta kosti einn eða tveir starfsmenn fara yfir greiðsluna og samþykkja hana eða hafna
  • Þegar báðir hafa samþykkt gengur greiðslan í gegn
  • Hægt er að skoða aftur í tímann hver samþykkti greiðslur
 
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall