Ný skýrsla um samfélagslega ábyrgð 2017

Íslandsbanki hefur, sem stór vinnustaður með breiðan viðskiptamannahóp, gert það að forgangsverkefni að vera í góðum tengslum við umhverfi sitt. Íslandsbanki hefur fylgt meginreglum Sameinuðu þjóðanna, UN Global Compact, um samfélagslega ábyrgð síðastliðin fjögur ár.

Samfélagsábyrgð er ein af þremur megin stefnuáherslum Íslandsbanka. Með útgáfu samfélagsskýrslunnar er leitast við að greina, meta og mæla þau áhrif sem starfsemi bankans hefur á umhverfið og samfélagið. Þá er skýrslan einnig gagnleg fyrir starfsfólk Íslandsbanka sem fær góða yfirsýn yfir framvindu verkefna bankans og með hvaða hætti þau hafa áhrif á samfélagið.

 

 

Fimm stoðir samfélagsábyrgðar:

  • Viðskipti: Íslandsbanki leggur áherslu á góða stjórnarhætti og hagkvæmni. Bankinn leitast við að þjóna viðskiptavinum sínum með því að hafa skýrt regluverk, veita gagnlegar upplýsingar og gæta jafnræðis meðal viðskiptavina
  • Fræðsla: Markmið Íslandsbanka er að auka þekkingu, færni og áhuga á fjármálum með því að bjóða upp á aðgengilega og áhugaverða fræðslu um fjármál og efnahagsmál. Fræðslunni er ætlað að vekja áhuga og aðstoða fólk við að taka upplýstar ákvarðanir um eigin fjármál.
  • Umhverfi: Íslandsbanki leggur áherslu á að vinna í takt við umhverfið og að lágmarka þau neikvæðu áhrif sem starfsemi bankans kann að hafa á umhverfið.
  • Vinnustaður: Ýtt er undir helgun starfsmanna með virkri þátttöku í samfélagsverkefnum, vellíðan á vinnustað og markvissri fræðslu. Markmið Íslandsbanka er að ráða, efla og halda í hæfileikaríkt og ábyrgt starfsfólk
  • Samfélag: Íslandsbanki leggur sitt af mörkum til að efla nærumhverfi sitt með því að styðja við félags-, menningar- og íþróttastarf auk þess að styrkja nýsköpunar- og frumkvöðlaverkefni. Stuðningur er bæði í formi þátttöku starfsmanna og beins fjárstuðnings við valin verkefni.

Langar þig að vita meira? Náðu þér í eintak af skýrslunni hér neðar eða fáðu hana senda í pósti með því að smella á "Panta skýrslu".

Lestu skýrsluna

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall