Fréttir Greiningar

Spáum 0,1% hækkun neysluverðs í október

19.10.2015 10:37

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,1% í október frá septembermánuði. Ef spáin gengur eftir helst verðbólga óbreytt í 1,9%. Verðbólga verður því áfram undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.

Verðbólguhorfur til meðallangs tíma hafa batnað lítið eitt frá síðustu spá okkar, m.a. vegna gengisstyrkingar krónu og endurmats okkar á launaþróun á seinni hluta spátímans. Við teljum að verðbólgan verði rétt innan við verðbólgumarkmið Seðlabankans í árslok. Horfur eru á vaxandi verðbólgu í kjölfarið. Verður hún samkvæmt spánni rétt yfir verðbólgumarkmiðinu að jafnaði á næsta ári, en nærri efri mörkum markmiðsins árið 2017. Hagstofan birtir VNV fyrir október kl. 09:00 þann 29. október næstkomandi.

Tíðindalítil októbermæling?

Margt bendir til að fremur litlar sviptingar verði í októbermælingu VNV. Horfurnar eru þó í stórum dráttum þannig að innlendir liðir muni fremur vega til hækkunar, en innfluttir til lækkunar. Af hækkunarliðum í spá okkar vegur þyngst húsnæðisliðurinn, sem við áætlum að muni hækka um rúm 0,4% milli mánaða (0,12% í VNV). Er það að stærstum hluta vegna 0,7% hækkunar á reiknaðri húsaleigu (0,10% í VNV), en þá spá byggjum við á könnun okkar á þróun markaðsverðs.

Þá gerum við ráð fyrir 3,5% hækkun á flugfargjöldum til útlanda, og í heild hafa flugfargjöld áhrif til 0,04% hækkunar VNV í október. Aðrir liðir hafa samanlagt áhrif til 0,02% hækkunar VNV í spá okkar.

Eldsneyti, matvara og gisting til lækkunar

Á móti vega ýmsir undirliðir VNV til lækkunar hennar í október samkvæmt spá okkar. Tengjast þeir flestir áhrifum styrkingar krónu síðustu mánuði á innflutningsverð. Þyngst vegur þar tæplega 0,4% lækkun á matvöru og drykkjum (-0,05% í VNV). Bónus tilkynnti nýverið um lækkun á ýmsum innfluttum vöruflokkum og teljum við að sú lækkun, ásamt viðbrögðum samkeppnisaðila við bæði styrkingu krónu og þessu útspili, muni ráða mestu um framangreinda lækkun.
 
Eldsneytisverð hefur lækkað frá septembermælingu Hagstofunnar, og bendir athugun okkar til þess að lækkunin muni nema rúmlega 1% (-0,03% í VNV). Þá áætlum við að verð gistingar muni lækka um 5% í október (-0,02% í VNV) og er þar um árstíðarbundin áhrif að ræða.

Verðbólga við markmið í árslok

Við teljum að verðbólga muni aukast lítillega eftir því sem nær dregur árslokum og skammdegið tekur við. Að stórum hluta er ástæðan sú 0,5% mánaðarlækkun VNV í nóvember í fyrra dettur út úr 12 mánaða mælingu VNV. Einnig munu áfram togast á innlendur kostnaðarþrýstingur annars vegar, og innflutt verðstöðnun eða –hjöðnun vegna styrkingar krónu og lítillar erlendrar verðbólgu hins vegar.

Við gerum ráð fyrir 0,1% hækkun VNV í nóvember og 0,2% hækkun í desember. Samkvæmt þeirri spá mun verðbólga mælast 2,4% í lok árs. Í spá okkar gerum við m.a. ráð fyrir að afnám tolla af fötum og skóm um næstu áramót hafi áhrif á næstu mánuðum, og þá að verslanir komi til með að lækka vöruverð í aðdraganda áramótanna. Gæti verðþróunin þar því orðið áþekk þeirri sem var hjá raftækjaverslunum í fyrra þegar þau brugðust við fyrirhuguðum lækkun vörugjalda á raftækjum um áramótin með því að lækka verð fyrir breytingu. Enn sjást þó engin merki um slíka verðlækkun, öfugt við reynsluna í fyrra þegar framangreindar vörur tóku að lækka nokkrum mánuðum fyrir áramót.

Innlendur verðbólguþrýstingur er umtalsverður þessa dagana. Þar vegur þungt umtalsverð hækkun launa hjá stórum hluta vinnumarkaðarins í nýlegum kjarasamningum, en einnig kemur til viðvarandi hækkun raunverðs íbúðarhúsnæðis og vaxandi framleiðsluspenna á ýmsum sviðum hagkerfisins. Munu þessir þættir þrýsta verðbólgu upp á við. Á móti vegur talsverð hækkun á gengi krónunnar undanfarið og lítill innfluttur verðþrýstingur. Við spáum því að verðbólga muni aukast jafnt og þétt á næsta ári, og gerum við ráð fyrir 3,4% verðbólgu í lok ársins 2016 en 3,6% yfir árið 2017. Verðbólga verður samkvæmt spánni rétt undir efri mörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans seinni hluta spátímabilsins.

Verðbólguspá fyrir október 

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall