Fréttir Greiningar

Spáum 0,7% hækkun VNV í febrúar

10.02.2017 10:58

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,7% í febrúar frá fyrri mánuði. Miðað við þá spá verður verðbólga óbreytt í 1,9%, og byrjar þar með sitt fjórða ár samfleytt undir markmiði Seðlabankans.

Verðbólguhorfur til meðallangs tíma hafa batnað nokkuð frá síðustu spá okkar. Er það fyrst og fremst vegna breyttrar gengisforsendu, þar sem við gerum nú ráð fyrir hægari veikingu krónu á seinni hluta spátímans en áður. Verðbólga verður samkvæmt spánni undir verðbólgumarkmiðinu allt fram á 3. ársfjórðung 2018. Í kjölfarið mun verðbólga hins vegar aukast talsvert og fara nærri efri mörkum verðbólgumarkmiðs bankans í upphafi ársins 2019, en hjaðna síðan nokkuð að nýju. Hagstofan birtir mælingu VNV kl. 09:00 þann 27. febrúar næstkomandi.

Útsölulok, húsnæði, eldsneyti og ferðaþjónusta til hækkunar

Útsölulok setja ávallt svip sinn á VNV-mælingu febrúarmánaðar og verður einnig svo í ár að okkar mati. Áhrif þeirra á vísitöluna í ár verða þó væntanlega talsvert minni en í fyrra. Bæði kemur til að styrking krónu frá miðju síðasta ári fram í desember ætti að gera innkaup á nýjum varning talsvert ódýrari en innkaupsverð útsöluvaranna, og eins var verðlækkun vegna útsala á fötum og skóm með minna mótinu í síðasta mánuði. Við teljum að fata- og skóliðurinn muni hafa áhrif til 0,19% hækkunar VNV í febrúar og húsgögn, heimilisbúnaður o.fl. áhrif til 0,14% hækkunar. 

Líkt og fyrri daginn mun húsnæðisliðurinn væntanlega þrýsta VNV upp í febrúar. Þó teljum við að áhrif hans verði með minna móti að þessu sinni (0,13% í VNV). Þar ræður mestu að könnun okkar bendir til þess að mæld hækkun á markaðsverði íbúðarhúsnæðis verði í hóflegri kantinum þennan mánuðinn, eða sem nemur 0,6% (0,10% í VNV).  

Flugfargjöld til útlanda lækkuðu nokkuð í janúar, og bendir könnun okkar til þess að þau muni hækka nokkuð á nýjan leik. Svipaða sögu má segja um innanlandsflug, og teljum við að flugfargjöld muni í heild hafa áhrif til 0,07% hækkunar VNV nú. Þá hafa hótel og veitingastaðir jafnan hækkað verð í þessum mánuði síðustu þrjú ár, og teljum við að það verði einnig raunin nú (0,04% í VNV). Loks má nefna að hækkun á eldsneytisverði frá síðustu mælingu VNV hefur að mati okkar áhrif til rúmlega 0,03% hækkunar VNV í febrúar.

Að þessu sinni hafa fáir liðir lækkunaráhrif á VNV svo orð sé að gerandi. Þó má nefna að við gerum ráð fyrir áframhaldandi lækkun á verði símaþjónustu (-0,02% í VNV), bifreiðum og varahlutum (-0,02% í VNV) og lyfjum og lækningarvörum (-0,01% í VNV).

Verðbólga á svipuðum slóðum fram á vor

Horfur eru á að verðbólgutakturinn breytist lítið næstu mánuðina. Við spáum 0,4% hækkun VNV í mars, 0,3% hækkun í apríl og 0,3% hækkun í maí. Verðbólga mun samkvæmt því mælast 1,9% í maí nk. 

Húsnæðisliðurinn leggur að jafnaði mest til hækkunar VNV á tímabilinu, eða 0,17% í mánuði hverjum að jafnaði. Í mars ganga útsöluáhrif til baka að mestu, en við gerum þó ráð fyrir að verð innfluttra vara á borð við föt, húsgögn og raftæki verði almennt lægra í lok ársfjórðungsins vegna styrkingar krónu og afnáms tolla á hluta þessara vara. Þá gerum við ráð fyrir að flugfargjöld hækki í mars og apríl, en lækki að nýju í maí. Loks má gera ráð fyrir að verð fyrir þjónustu hótela og veitingahúsa hækki talsvert í maí þegar háannatími ferðaþjónustunnar fer í hönd.

Verðbólga undir markmiði fram á haustið 2018

Útlit er fyrir áframhaldandi hóflega verðbólgu hérlendis á spátímabilinu svo lengi sem gengi krónu gefur ekki eftir á nýjan leik. Við spáum því að verðbólga verði að jafnaði 1,9% á árinu 2017, og að í lok næsta árs mælist hún einnig 1,9%. Í kjölfarið teljum við hins vegar að verðbólga muni fara vaxandi, fara yfir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans á þriðja ársfjórðungi 2018 og nálgast 4,0% efri þolmörk markmiðsins á fyrsta fjórðungi ársins 2019. Eftir það gerum við ráð fyrir að verðbólga hjaðni nokkuð að nýju það ár og mælist 3,2% í lok spátímans. Eðlilega eykst þó óvissa spárinnar eftir því sem lengra er skyggnst fram á við.
 
Gengisþróun krónu er sem fyrr einn stærsti áhrifaþáttur spár okkar, og höfum við gert nokkrar breytingar á gengisforsendu spárinnar. Við spáum nú gengisstyrkingu sem nemur ríflega 6% frá núverandi gildum fram á lokafjórðung yfirstandandi árs. Líkt og áður gerum við í kjölfarið ráð fyrir hægfara gengislækkun krónu á seinni hluta spátímans, þegar dregur úr hagvexti og viðskiptaafgangi og hátt raungengi fer að segja til sín af auknum þunga. Sú gengislækkun er þó hægari í spá okkar nú en síðustu spá, og helst raungengi krónu raunar nánast óbreytt. Gengi krónu verður þrátt fyrir þá gengislækkun nokkru hærra í árslok 2019 en núverandi gengi, gangi spáin eftir. Þess má geta að í samanburði við nýbirta spá Seðlabankans gerum við ráð fyrir öllu sterkari krónu í ár og næsta ár, en heldur lægra gengi krónu árið 2019. Verðbólguspár okkar og Seðlabankans endurspegla þennan mun á gengisforsendum að talsverðu leyti, þar sem við spáum minni verðbólgu í ár en Seðlabankinn minni verðbólgu árin 2018 og 2019.

Hækkun launa mun áfram mynda hækkunarþrýsting á verðlag hérlendis, enda gerum við ráð fyrir nokkuð meiri hækkun launa en samrýmist verðbólgumarkmiðinu að viðbættum framleiðnivexti. Sá þrýstingur minnkar hins vegar jafnt og þétt þegar frá líður og dregur úr spennu á vinnumarkaði. Svipaða sögu má segja af verðþróun íbúðarhúsnæðis, þar sem við spáum áframhaldandi hækkun en að smám saman dragi úr hækkunarhraðanum.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall