Fréttir Greiningar

Kortavelta erlendra ferðamanna orðin meiri en allt árið í fyrra

14.10.2014 10:57

Alls nam kortavelta útlendinga hér á landi 10,1 mö. kr. í september sl., sem er aukning upp á rúm 21% í krónum talið á milli ára samkvæmt tölum sem Seðlabanki Íslands birti um greiðslumiðlun í gær. Þessi mikla aukning kemur ekki á óvart enda voru erlendir ferðamenn einnig 21% fleiri nú í september sl. en í sama mánuði í fyrra samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu Íslands. Jafnframt er þetta sama þróunin og verið hefur samfellt í hverjum einasta mánuði í fjögur ár, eða allt frá því í október 2010. 

Á fyrstu níu mánuðum ársins hafa erlendir ferðamenn náð að strauja kortin sín fyrir 93,3 ma. kr. hér á landi. Þrátt fyrir að enn séu þrír mánuður eftir af árinu er því kortavelta þeirra nú þegar orðin meiri en hún var allt árið í fyrra (91,3 ma. kr.). Það rímar vel við tölur Ferðamálastofu, enda eru erlendir ferðamenn nú þegar orðnir fleiri á fyrstu níu mánuðum ársins (788 þús.) en þeir voru allt árið í fyrra (781 þús.). 

Kortaveltujöfnuður aldrei hagstæðari 

Alls nam kortavelta Íslendinga í útlöndum 8,1 mö. kr. í september sl. Var kortaveltujöfnuður, þ.e. mismunur á kortaveltu útlendinga hér á landi og Íslendinga í útlöndum, þar með jákvæður um 2,0 ma. kr. í mánuðinum. Er hér um að ræða hagfelldustu útkomu þessa jafnaðar frá upphafi í septembermánuði, en í september í fyrra var jöfnuðurinn jákvæður um 1,5 ma. kr. og árið þar á undan um 0,2 ma. kr. Sé tekið mið af fyrstu níu mánuðum ársins þá er kortaveltujöfnuður orðinn jákvæður um 28,8 ma. kr., sem er 10 mö. kr. betri útkoma en á sama tímabili í fyrra og 21 mö. kr. betri útkoma en á sama tímabili 2012.

Í raun er þróun kortaveltujafnaðar í ár hreint ótrúleg, en af þeim níu mánuðum sem liðnir eru á árinu hafa Íslendingar aðeins tvívegis náð að toppa erlenda ferðamenn í eyðslu á erlendri grundu og var mismunurinn í þeim tilvikum afar lítill. Á sama tímabili í fyrra var eyðsla Íslendinga erlendis umfram kortanotkun útlendinga hér á landi í 4 mánuði af 9 og árið þar á undan í 5 mánuði af 9. Enn meiru munar sé litið lengra aftur enda er ekki langt síðan að útlendingar náðu að toppa Íslendinga í þessum efnum í fyrsta sinn, en það gerðist í júní 2009. 

Metafgangur af þjónustujöfnuði á 3. ársfjórðungi?

Á 3. ársfjórðungi  í heild var kortaveltujöfnuður jákvæður um sem nemur 21,7 mö. kr., og hefur hann aldrei áður verið eins hagstæður á einum fjórðungi. Má því búast við að hið sama gildi um þjónustujöfnuð vegna ferðalaga á fjórðungnum, sem er ávallt hagstæðastur á þessum árstíma. Í fyrra nam afgangur af þjónustujöfnuði vegna ferðalaga á 3. fjórðungi 27,1 ma. kr., og má reikna með að hann verði hagstæður um a.m.k. 33 ma. kr. í ár. Ekki þarf að fjölyrða um hversu mikilvæg þessi þróun er fyrir gjaldeyrisflæði til og frá landinu, sér í lagi þar sem vöruútflutningur hefur verið heldur rýr þetta árið. Verður því áhugavert að sjá hvernig tölur um þjónustujöfnuð komi til með að líta út á 3. ársfjórðungi, en þær verða ekki birtar fyrr en í byrjun desember. 

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall