Fréttir Greiningar

Spáum 0,2% lækkun neysluverðs í janúar

09.01.2019 10:25

Við spáum að vísitala neysluverðs (VNV) muni lækka um 0,2% í janúar frá mánuðinum á undan. Miðað við þá spá hjaðnar 12 mánaða verðbólga úr 3,7% í 3,6%. Verðbólguhorfur til skamms tíma hafa lítið breyst frá síðustu spá. Útlit er fyrir að verðbólga verði 3,6% að jafnaði á fyrsta fjórðungi ársins og verði að meðaltali 3,6% á árinu 2019, en hjaðni í kjölfarið og verði að jafnaði 3,2% á árinu 2020. Hagstofan birtir VNV fyrir janúar kl.9 þann 20. þessa mánaðar.

Árvisst reiptog milli útsöluáhrifa og gjaldskrárhækkana

VNV-mælingin fyrir janúarmánuð markast ávallt af togstreitu milli útsöluáhrifa og lækkandi flugfargjalda annars vegar, og hækkunar alls kyns gjaldskráa fyrir opinbera þjónustu og einkaþjónustu hins vegar. Þetta ár verður þar engin undantekning að mati okkar.

Við gerum ráð fyrir svipuðum áhrifum af janúarútsölum og verið hafa síðustu ár. Spáum við því að fataliður VNV hafi áhrif til 0,34% lækkunar vísitölunnar og að húsgagna- og heimilisbúnaðarliðurinn vegi til 0,23% lækkunar. 

Flugfargjöld hækkuðu um nærri 24% í desember. Var þar um árstíðabundna þróun að ræða. Könnun okkar bendir til þess að liðurinn muni lækka um 12% í janúar (-0,18% í VNV).

Talsvert líf virðist enn vera í íbúðamarkaði þótt nokkuð hafi dregið úr hækkunarþrýstingi þar undanfarna fjórðunga. Athugun okkar bendir til þess að reiknuð húsaleiga, sem byggir að mestu á þróun íbúðaverðs, muni hækka um 0,9% í janúar (0,19% í VNV).

Í ársbyrjun hækka ávallt gjaldskrár ýmissa þjónustuaðila, bæði opinberra og í einkageiranum. Hækkun veitugjalda virðist þó ætla að verða með hóflegra móti að þessu sinni (0,06% í VNV). Hækkun opinberra gjalda á áfengi og tóbak leiðir að okkar mati til 0,05% hækkunar VNV í janúar. Þá vegur hækkun krónutölugjalda á eldsneyti að mestu upp áhrif lækkandi innkaupsverðs þótt mæling okkar bendi til þess að eldneytisverð hafi lækkað um u.þ.b. 0,3% frá desembermælingu VNV (-0,01% í VNV).

Loks má nefna að áhrif veikingar krónu á seinni helmingi síðasta árs eru enn að koma fram í verði innfluttra vara í nokkrum mæli.

Verðbólga hjaðnar þegar frá líður

Útlit er fyrir verðbólga muni áfram verða á svipuðu róli næstu mánuðina. Við spáum 0,6% hækkun VNV í febrúar,  0,4% hækkun VNV í mars og 0,2% hækkun VNV í apríl. Verðbólga mun samkvæmt því mælast 3,6% í apríl 2019. Í febrúar og mars ganga útsöluáhrif til baka með tilheyrandi hækkunarþrýstingi á VNV. Flugfargjöld lækka væntanlega áfram í febrúar líkt og gjarnan hefur verið undanfarin ár. Jafnt og þétt mun draga úr hækkunartakti innfluttra vara þegar vorar að því gefnu að krónan veikist ekki á nýjan leik. Þá gerum við ráð fyrir að íbúðaverð muni hækka öllu hægar á komandi mánuðum en áætlað er í janúarspánni.

Í kjölfarið teljum við að verðbólga muni aukast nokkuð fram eftir árinu 2019 og ná hámarki í 3,8% á 3. ársfjórðungi, en hjaðna síðan jafnt og þétt að nýju . Spáum við því að verðbólga mælist 3,3% í árslok 2019 en verði að jafnaði 3,2% á árinu 2020. Verðbólga mun samkvæmt þessu haldast innan 4% þolmarka verðbólgumarkmiðs Seðlabankans en nokkuð virðist í að hún eigi afturkvæmt undir 2,5% markmiðið. 

Kjarasamningar á komandi mánuðum eru líkt og fyrri daginn einn stærsti óvissuþáttur spárinnar. Við gerum ráð fyrir að laun muni að jafnaði hækka svipað hratt á yfirstandandi ári og raunin var í fyrra, en talsverð hætta er þó á að hækkunin verði meiri eða að önnur skilyrði kjarasamninga sem snúa að hinu opinbera geti leitt til meiri verðbólguþrýstings þegar frá líður.

Þá gerum við sem fyrr ráð fyrir að íbúðaverð hækki hægar eftir því sem líður á spána, og að gengi krónu muni að jafnaði verða svipað næstu misserin og verið hefur síðustu vikurnar.  Óvissan um gengisþróun krónu er að mati okkar tiltölulega samhverf, enda virðist núverandi gengi vera í grennd við jafnvægisgengi til skemmri tíma litið.

Verðbólguspá fyrir janúar

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall