Fréttir Greiningar
Spáum 0,4% hækkun neysluverðs í ágúst
14.08.2018 10:34
Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,4% í ágúst frá fyrri mánuði. Miðað við þá spá eykst verðbólga úr 2,7% í 2,8% í ágúst. Útlit er fyrir að verðbólga verði um 3,1% í lok þessa árs og verði að jafnaði um 2,9% út árið 2019.
Íbúðaverð og útsölulok vega þungt til hækkunar
Hækkandi íbúðaverð vegur þyngst til hækkunar VNV í ágúst. Reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar að mestu þróun íbúðaverðs, vegur til 0,17% hækkunar VNV. Í heild vegur húsnæðisliðurinn til 0,21% hækkunar í ágúst.
Útsölulok hafa einnig talsverð áhrif til hækkunar á VNV í ágúst líkt og ávallt í þessum mánuði. Föt og skór vega til 0,20% hækkunar og húsgögn og heimilisbúnaður til 0,02% hækkunar. Einnig spáum við að matur og drykkjarvörur hækki VNV um 0,05%.
Flugfargjöld lækka
Fáir liðir vega til lækkunar VNV í ágúst. Útlit er fyrir árstíðarbundna lækkun á flugfargjöldum um 11% í ágúst (-0,17% í VNV) eftir ríflega 23% hækkun í júlímánuði (0,31% í VNV). Við spáum því að liðurinn ferðir og flutningar vegi í heild til lækkunar VNV um 0,15%.
Verðbólga næstu misseri
Útlit er fyrir að verðbólgutakturinn muni aukast lítillega næstu mánuðina. Við spáum 0,3% hækkun í september, 0,3% hækkun í október og 0,1% hækkun í nóvember. Verðbólga mun samkvæmt því mælast 3,1% í nóvembermánuði. Áhrif útsöluloka munu setja svip sin á mælingar VNV í september en á hinn bóginn gerum við ráð fyrir áframhaldandi árstíðarbundinni lækkun flugfargjalda í þeim mánuði.
Við teljum að verðbólga verði um 3,1% í loks ársins. Í kjölfarið teljum við að verðbólga verði að meðaltali 2,9% árið 2019 og 3,0% árið 2020. Til grundvallar langtímaspánni liggja forsendur um tiltölulega hóflega hækkun launa og húsnæðisverðs, ásamt litlum breytingum á gengi krónu næstu misserin.
Óvissa er hins vegar um þessa liði, sér í lagi launaþróunina. Ef aftur bætir í hækkunartakt launa frá núverandi árstakti mun það auka verðbólguþrýsting á komandi misserum.