Fréttir Greiningar
Verðbólguspá fyrir september
13.09.2013 11:06
Greining Íslandsbanka hefur gefið út nýja verðbólguspá.
Helstu atriði:
- Spáum 0,4% hækkun VNV í september. Verðbólga lækkar þá úr 4,3% í 4,0%.
- Útsölulok (0,3% í VNV) og árstíðarbundin hækkun á gjöldum fyrir nám, tómstundir og aþreyingu (0,1% í VNV) eru helstu hækkunarvaldar VNV í september.
- Á móti vegur niðurgreiðsla á tannlækningum barna (-0,03% í VNV) og lækkun á flugi til útlanda (-0,05%).
- Hækkun eldsneytisverðs hefur að mestu gengið til baka og við gerum ráð fyrir lítilli hækkun húsnæðisliðar.
- Spáum 0,9% hækkun VNV á 4. ársfjórðungi. 0,5% í okt., 0,1% í nóv. og 0,3% í des. Verðbólga verður þá 4,2% í árslok.
- Spáum 3,9% verðbólgu yfir árið 2014.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?