Fréttir Greiningar
Hlutabréfamarkaður með flensu
03.10.2014 09:50
Vísitalan var í sínum lægstu gildum í lok júlí sl. en hafði þá lækkað um 8,5% frá ársbyrjun. Síðan þá hefur hún braggast aðeins en er víðsfjarri því að hafa alveg rétt úr kútnum.
Ekki er hægt að benda á eina skýringu á þessari lækkun. Þó má nefna að fjárfestar hafa talsvert mikið leitað með fjármagn sitt í fasteignatengd verkefni á árinu.
Allt Marel að kenna?
Verulega misskipt velta
Velta á hlutabréfamarkaði fyrstu níu mánuði ársins nam 198 ma.kr. Er það talsverð breyting til hins verra og hefur veltan minnkað um fimmtung á helstu félögum sem skráð voru í lok september 2013.
Er veltunni æði misskipt milli félaganna. Sama gildir þegar veltan er skoðuð í hlutfalli af markaðsverðmæti hvers félags.
Icelandair ber höfuð og herðar yfir önnur félög en langmest velta var með hlutabréf í því félagi á fyrstu níu mánuðum ársins. Velta með hlutabréf Icelandair er rúmlega tvöföld sú velta sem það félag hefur sem er í öðru sæti en það eru Hagar. Kemur þetta ekki á óvart í ljósi mikilla sviptinga í væntingum til afkomu Icelandair sökum annars vegar verkfalla og hins vegar yfirvofandi eldgos.