Fréttir Greiningar
Sjóvá á markað 2014
16.09.2013 12:03
Stefnt er að því að hlutabréf í Sjóvá-Almennum tryggingum hf. verði tekin til viðskipta í Kauphöllinni árið 2014 og verður félagið þar með þriðja tryggingafélagið í Kauphöllinni. Sjóvá hafði næst stærstu markaðshlutdeild íslenskra tryggingafélaga á árinu 2012, 26,3% og námu iðgjaldatekjur félagsins 11,5 mö.kr., eignir félagsins námu aftur 40,3 mö.kr. Hluthafar félagsins í dag eru SF1 slhf., fagfjárfestasjóður á vegum Stefnis hf., SAT Eignarhaldsfélag hf. sem er í eigu Glitnis banka hf. og Íslandsbanki hf. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka mun hafa umsjón með útboðinu en markmið þess er að tryggja almenna og góða dreifingu á eignarhaldi félagsins.
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?