Fréttir Greiningar

Spáum 0,5% hækkun neysluverðs í ágúst

14.08.2015 08:51

Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka um 0,5% í ágúst frá júlímánuði. Ef spáin gengur eftir eykst verðbólga úr 1,9% í 2,1%. Verðbólga verður því áfram rétt undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands.

Verðbólguhorfur til meðallangs tíma eru svipaðar og í síðustu spá að okkar mati. Við teljum að verðbólgan muni verða í 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans undir lok 3. ársfjórðungs og fara yfir markmiðið á lokafjórðungi ársins. Horfur eru á vaxandi verðbólgu í kjölfarið, en hún verður þó samkvæmt spánni rétt innan 4,0% efri þolmarka verðbólgumarkmiðsins næstu ár. Hagstofan birtir VNV fyrir júlí kl. 09:00 þann 27. ágúst næstkomandi.

Útsölulok, húsnæði og matur til hækkunar

Tveir þættir vega þyngst til hækkunar VNV að þessu sinni. Annars vegar hækkar verð á fötum og skóm verulega, líkt og jafnan í ágústmánuði þegar útsölur fataverslana renna sitt skeið. Áætlum við áhrif útsöluloka til 0,34% hækkunar VNV, sem eru svipuð áhrif og fyrir ári síðan.

Þá vegur húsnæðisliður VNV til 0,24% hækkunar í spá okkar. Kemur þar tvennt til: Annars vegar bendir athugun okkar til þess að reiknuð húsaleiga, sem að mestu endurspeglar markaðsverð húsnæðis, muni hækka um 0,9% milli mánaða í ágúst (0,13% í VNV). Hins vegar hækkar kostnaður við viðhald húsnæðis verulega í kjölfar nýlegra kjarasamninga (0,08% í VNV).

Auk þessa gerum við ráð fyrir u.þ.b. 1,0% hækkun á verði mat- og drykkjarvara (0,13% í VNV). Stór hluti þessarar hækkunar skrifast á hækkun mjólkurvara (0,08% í VNV), en tilkynnt var um umtalsverða verðhækkun slíkra vara í síðasta mánuði og tók hækkunin gildi í ágústbyrjun.

Eldsneyti og flugfargjöld til lækkunar

Helstu lækkunarliðir VNV að þessu sinni tengjast ferðum og flutningum. Eldsneytisverð hefur lækkað verulega á heimsmarkaði frá júlíbyrjun, og hafa olíufélögin fylgt þeirri þróun eftir með því að lækka verð á eldsneyti í tvígang frá júlímælingu Hagstofunnar á VNV. Samtals nemur verðlækkun eldsneytis 3,7% á tímabilinu (-0,13% í VNV). Þá bendir athugun okkar til þess að flugfargjöld til útlanda lækki verulega í ágústmælingu VNV eftir þriðjungshækkun í júlí (-0,21% í VNV). Leggjast þar væntanlega á eitt áhrif af lægra eldsneytisverði og árstíðarbundin áhrif.

Dagurinn styttist, verðbólgan eykst

Við teljum að verðbólga muni aukast eftir því sem nær dregur árslokum og dagurinn styttist. Að hluta til er ástæðan sú að tímabil verðstöðnunar á seinni hluta síðasta árs dettur út úr 12 mánaða mælingu VNV. Sú verðstöðnun kom til að stærstum hluta vegna hagstæðrar þróunar eldsneytisverðs, áhrifa af breytingum á sköttum og gjöldum á neysluvarningi og fremur lítils kostnaðarþrýstings innanlands eftir hófsama kjarasamninga í upphafi síðasta árs.

Við þetta bætist þó að innlendur verðbólguþrýstingur er að aukast töluvert nú um stundir. Þar vegur þungt umtalsverð hækkun launa hjá stórum hluta vinnumarkaðarins í nýlegum kjarasamningum, en einnig kemur til viðvarandi hækkun raunverðs íbúðarhúsnæðis og vaxandi framleiðsluspenna á ýmsum sviðum hagkerfisins. Munu þessir þættir þrýsta upp verðbólgu þrátt fyrir lítinn innfluttan verðþrýsting að mati okkar, og leiða til þess að verðbólgan verður talsvert yfir 2,5% markmiði Seðlabankans næstu árin. 

Við gerum ráð fyrir 0,2% hækkun VNV í hverjum mánuði næstu 3 mánuðina, en 0,3% hækkun í desember. Samkvæmt þeirri spá mun verðbólga ná 2,5% markmiði Seðlabankans í septembermánuði, og fara í 3,3% fyrir árslok. 

Í kjölfarið spáum við því að enn muni bæta í verðbólguna á næsta ári, og gerum við ráð fyrir 3,7% verðbólgu í lok ársins 2016. Verðbólga verður samkvæmt spánni rétt undir efri mörkum verðbólgumarkmiðs Seðlabankans stærstan hluta næsta árs, og ljóst að ekki þarf mikið til að hún fari yfir efri þolmörkin. 

Forsendur okkar varðandi launaþróun, íbúðaverð og gengi krónu til meðallangs tíma eru að mestu óbreyttar frá síðustu spá. Vaxandi verðbólga samkvæmt spánni skýrist að stórum hluta af mun hraðari hækkun launa en samrýmist stöðugu verðlagi, enda bendir flest til þess að sú verði raunin næstu misserin. Þá teljum við að íbúðaverð hækki áfram að raunvirði, og setji þar með þrýsting upp á við á verðbólguna. Loks festum við gengi krónu nálægt núverandi gildi, enda hefur gengi krónunnar verið nær óbreytt í nærri hálft annað ár undir styrkri stjórn Seðlabankans. Í ljósi þess að nú fer í hönd tímabil þar sem fjármagnshöft verða losuð jafnt og þétt má þó búast við auknum sveiflum í gengi krónu á komandi fjórðungum, þótt óvissan um gengisbreytingar sé nokkurn veginn samhverf á spátímanum að mati okkar.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall