Fréttir Greiningar

Ekkert lát á tekjuvexti af erlendum ferðamönnum

16.09.2013 12:13

nullKortaveltutölur Seðlabankans fyrir ágúst sýna enn og aftur að ekkert lát er á tekjuvexti af erlendum ferðamönnum, og mun ferðaþjónusta væntanlega skila meiri gjaldeyristekjum nettó á þriðja ársfjórðungi en nokkru sinni fyrr. Heildarúttekt erlendra greiðslukorta hérlendis nam 14,7 mö.kr. í ágústmánuði sem jafngildir aukningu upp á tæp 19% á milli ára, í krónum talið. Það er í ágætu samræmi við tölur um brottfarir erlendra ferðamanna um Flugstöð Leifs Eiríkssonar (FLE) sem hljóðuðu upp á rúmlega 14% aukningu á milli ára í ágúst. Kortavelta Íslendinga erlendis nam tæplega 7,4 mö.kr. í ágústmánuði. Var kortaveltujöfnuður, þ.e. mismunur á kortaveltu útlendinga hérlendis og Íslendinga erlendis, þar með jákvæður um tæpa 7,4 ma.kr. í mánuðinum, sem er metafangur hvað ágústmánuð varðar. Til samanburðar má nefna að í ágúst í fyrra var afgangur upp á 5,9 ma.kr. af kortaveltujöfnuði, og í ágúst árið þar á undan mældist afgangur upp á 4,8 ma.kr. Vart þarf að nefna að fyrir hrun var kortaveltujöfnuður ávallt í halla hvern einasta mánuði ársins.

Metafgangur af þjónustujöfnuði á 3. ársfjórðungi?

nullÞróunin á kortaveltutölunum var einnig mjög hagstæð í júlí síðastliðnum og bendir því allt til þess að metafgangur sé í uppsiglingu á þjónustujöfnuði vegna ferðalaga á þriðja ársfjórðungi nú í ár. Þannig nemur afgangur af kortaveltujöfnuði í júlí og ágúst samanlagt 15,8 mö.kr., samanborið við 12,9 ma.kr. á sama tímabili í fyrra og 10,1 ma.kr. árið þar á undan.

Á fyrri hluta árs nam afgangur af þjónustujöfnuði 19,9 mö.kr. en hafði á sama tímabili í fyrra verið 2,0 ma.kr. Allt árið 2012 nam afgangurinn af þjónustujöfnuði 26,3 mö.kr. Miðað við að 3. ársfjórðungur er ávallt langhagstæðastur hvað þjónustujöfnuð varðar bendir allt til þess að afgangur af þjónustujöfnuði á árinu í heild verði umtalsvert meiri en í fyrr. Það eru jákvæð tíðindi fyrir gjaldeyrisflæði til og frá landinu, og er þróunin sér í lagi mikilvæg í ljósi þess að vöruskiptaafgangur lítur út fyrir að verða minni í ár en í fyrra.

Back

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Afhverju ekki?
Hætta við

Ábending þín er notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Íslandsbanka. Vantar þig aðstoð sem krefst þess að við svörum þér má hafa samband við Þjónustuver Íslandsbanka.

Netspjall