Fréttir Greiningar
Spáum óbreyttu neysluverði í júlí
13.07.2017 09:22
Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) verði óbreytt í júlí frá fyrri mánuði. Miðað við þá spá eykst verðbólga úr 1,5% í 1,9% í júlí.
Verðbólguhorfur til meðallangs tíma hafa versnað nokkuð frá síðustu spá vegna breyttrar gengisforsendu í langtímaspá okkar. Er nú útlit fyrir að verðbólga fari yfir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í kring um næstu áramót, en verði síðan að jafnaði rétt um 3,0% út árið 2019.
Húsnæði, flug og eldsneyti til hækkunar
Hækkandi íbúðaverð vegur þyngst til hækkunar VNV í júlí líkt og verið hefur. Reiknuð húsaleiga, sem endurspeglar að mestu þróun íbúðaverðs, vegur til 0,26% hækkunar VNV. Þó virðist heldur vera að hægja á hækkun íbúðaverðs m.v. könnun okkar. Í heild vegur húsnæðisliður VNV til 0,3% hækkunar í júlí.
Flugfargjöld hafa áhrif til 0,21% hækkunar VNV, og er þar um árstíðarsveiflu að ræða. Þá hefur eldsneytisverð hækkað nokkuð undanfarið vegna veikingar krónu (0,05% í VNV).
Útsöluáhrif til lækkunar
Útsölur eru nú komnar á fullt skrið, og eru áhrif þeirra talsverð í spá okkar fyrir júlí. Við teljum að verðlækkun á fötum og skóm hafi áhrif til 0,54% lækkunar VNV, og að húsgagna- og heimilisbúnaðarliðurinn hafi áhrif til 0,06% lækkunar. Þá áætlum við að lækkun á lyfjaverði hafi áhrif til 0,04% lækkunar VNV í júlí.
Aðrir liðir hafa minni áhrif en vega á heildina litið til tæplega 0,1% hækkunar í júlí.
Verðbólga svipuð næsta kastið
Útlit er fyrir að verðbólgutakturinn muni verða svipaður næstu mánuðina. Við spáum 0,5% hækkun VNV í ágúst, 0,4% hækkun í september og 0,2% hækkun í október. Verðbólga mun samkvæmt því mælast 2,1% í októbermánuði.Húsnæðisliðurinn leggur að jafnaði mest til hækkunar VNV á tímabilinu, eða 0,21% í mánuði hverjum að jafnaði. Útsöluáhrif munu svo setja svip sinn á skapi á ágúst- og septembermælingar VNV. Þá gerum við ráð fyrir nokkurri árstíðarbundinni lækkun flugfargjalda í ágúst og september.
Öllu meiri verðbólga á komandi misserum
Útlit er fyrir fremur hóflega verðbólgu hérlendis á spátímabilinu svo lengi sem gengi krónu gefur ekki verulega eftir. Gengisþróun krónunnar hefur hins vegar verið töluvert önnur en við væntum undanfarnar vikur, og er gengisforsenda okkar nú varfærnari hvað varðar frekari styrkingu krónu á spátímanum. Hefur það nokkur áhrif til meiri verðbólgu á næstu fjórðungum í spá okkar. Hins vegar eiga frekari áhrif af aukinni samkeppni einnig eftir að koma fram að mati okkar og halda aftur af verðbólgu á næstunni.
Við teljum að verðbólga haldist undir verðbólgumarkmiði Seðlabankans fram undir næstu áramót, en mælist 2,6% í desember nk. Hins vegar verður verðbólgutakturinn heldur hraðari í spá okkar eftir því sem líður á næsta vetur. Áætlum við að verðbólga verði að jafnaði 3,0% á næsta ári. Við spáum svo 2,9% verðbólgu að meðaltali árið 2019.